Enda svo gaman að kynnast fólki!
Stundum þurfum við svoítið að lesa í karakterinn sem er í viðtölunum.
Sem til dæmis kenndu gömlum vinum sínum að drekka dry á Hallærisplaninu til að þurfa minna að pissa á djamminu í den.
Eða leika sér með íslenskuna þannig að eflaust supu einhverjir lesendur hveljur...
Oft þarf þó að ræða erfið mál. Atvinnulífið í Grindavík fyrr og nú er til dæmis gott dæmi.
Eða óvissan sem greip um sig um sig alls staðar eftir bankahrun.
En sem betur fer getum við líka alltaf talað um aðeins mýkri málin. Þótt þau tengist bissness.
Síðustu árin hefur Atvinnulífið rifjað upp tímanna tvenna með ýmsum rótgrónum fjölskyldufyrirtækjum.
Í fyrra lögðum við líka áherslu á að kynnast nokkrum ungum stjórnendum sem eru að gera það gott.
Við heyrðum líka af því hvernig rómantíkin getur verið partur af vinnunni okkar.
Eða um ævintýralíf þeirra sem allir hafa þekkt nafnið á í áratugi.
Reglulega ræðir Atvinnulífið einmitt við Íslendinga sem búa erlendis.
Að sama skapi kynnumst við líka reglulega fólki á Íslandi sem kemur annars staðar frá.
Árið kvöddum við síðan með einlægu forstjóraviðtali við konu í Kauphallarfyrirtæki.
Fleiri viðtöl í Atvinnulífinu má lesa HÉR.