Klakastykki stórskemmdi bíl Jón Ísak Ragnarsson skrifar 1. febrúar 2025 19:26 Bíllinn er óökuhæfur. Hróar Björnsson Stærðarinnar klakastykki rann af fjölbýlihúsi og olli stórskemmdum á bíl í Grafarvogi í gærkvöldi. Bíllinn er töluvert skemmdur ef ekki ónýtur, að sögn aðstandana eigandans.
Hróar Björnsson er svili eiganda bílsins. Hann segir að bílnum hafi verið lagt beint fyrir utan Laufengi 11 í Grafarvogi, um það bil tveimur metrum frá aðalinnganginum. Eigandinn hafi bara ætlað að hoppa inn í kvöldmat og drífa sig svo aftur út. „En svo eftir um það bil fimmtán mínútur heyrum við svakalega dynki, þung hljóð. Þá hafði klakastykki runnið af þakinu og beint á bílinn,“ segir Hróar. Hann segir að bíllinn hafi orðið fyrir verulegum skemmdum, framrúðan sé mölbrotin, toppurinn beyglaður og framendinn líka. Hróar hvetur fólk til þess að hafa varann á og líta sér nær, en hann segir lán í óláni að stykkið hafi ekki fallið á gangandi vegfaranda. Klakastykkið hrundi sem betur fer á bíl, en ekki gangandi vegfaranda.Hróar Björnsson Bíllinn er vinnubíll þrifafyrirtækis, og reksturinn er stopp vegna slyssins eins og sakir standa.Hróar Björnsson Hróar Björnsson Hróar Björnsson
Veður Reykjavík Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Fleiri fréttir Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Sjá meira