„Nei, hættu nú alveg Jóhann Páll!“ Árni Sæberg skrifar 7. mars 2025 13:36 Guðmundur Ingi er ekki ánægður með Jóhann Pál. Það eru Ung vinstri græn ekki heldur. Vísir Varaformaður Vinstri grænna og Ung vinstri græn fordæma ákvörðun umhverfisráðherra um að falla frá ráðstöfun 600 milljóna króna af fjárheimildum ársins 2025. Ráðuneyti hans hafi lengi verið fjársvelt og einsýnt sé að mikilvæg mál muni sitja á hakanum vegna ákvörðunar hans.
Á miðvikudag var greint frá því að Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefði ákveðið að falla frá ráðstöfun 600 milljóna króna af fjárheimildum ársins 2025 og lagt til við fjármála- og efnahagsráðherra að horft verði til þess við gerð frumvarps til fjáraukalaga. Um væri að ræða 250 milljónir króna af fjárheimildum á málefnasviði 15 Orkumál og 350 milljónir króna af fjárheimildum á málefnasviði 17 Umhverfismál. Greint var frá þessu á vef Stjórnarráðsins þar sem sagði að ákvörðunin um lækkun útgjalda væri liður í hagræðingarátaki ríkisstjórnarinnar. Með henni væri stutt við markmið um að ekki skyldi ráðist í nein ný útgjöld árið 2025 án þess að aukinna tekna væri aflað eða hagrætt á móti. Umhverfisverndarsinnar ekki ánægðir Þessum fregnum hafa umhverfisverndarsinnarnir í Vinstri grænum ekki tekið vel. Ung vinstri græn sendu í dag út yfirlýsingu undir yfirskriftinni Fjársvelt umhverfisráðuneyti í boði ríkisstjórnarinnar. Þar segir að umhverfisráðuneytið hafi í gegnum tíðina verið fjársvelt. Það hafi verið Vinstri græn sem juku framlög til umhverfisráðuneytisins um helming milli 2017 og 2021. Þessi ákvörðun ráðherrans nú sé mikil afturför fyrir þennan mikilvæga málaflokk. Að nýta ekki fjármuni í öll þau brýnu verkefni sem heyra undir ráðuneytið sé ákvörðun sem nái engri átt, verkefni muni nú ekki komast í framkvæmd og dregið verði úr öðrum vegna tilbúins fjárskorts ráðherrans sjálfs. Þetta fordæmi Ung vinstri græn harðlega. „Er meiningin að láta minna fjármagn renna í að tryggja öryggi gegn náttúruvá, verndun náttúru Íslands, framkvæmd vöktunar og rannsókna, vinnu að kolefnishlutleysi Íslands og öðrum loftslagsmálum og að koma á hringrásarhagkerfi til að stuðla að sjálfbærri nýtingu auðlinda? Hvert er planið? Það er verið að fjársvelta umhverfisráðuneytið í boði núverandi ríkisstjórnar. Því mótmæla Ung vinstri græn,“ segir í yfirlýsingunni. Kom á óvart og olli vonbrigðum Þá fékk Guðmundur Ingi Guðbrandsson, varaformaður Vinstri grænna og fyrrverandi umhverfisráðherra, aðsenda grein um málið birta hér á Vísi í dag. „Nei, hættu nú alveg Jóhann Páll!“ segir hann. Hann segir að umhverfisráðuneytið hafi um árabil verið fjársvelt en reynt hafi verið að bæta úr því í ráðherratíð hans. Það hafi komið honum verulega á óvart og valdið honum miklum vonbrigðum þegar Jóhann Páll boðaði niðurskurð í ráðuneytinu, um sex hundruð milljónir króna strax á þessu ári. „Það eru háar fjárhæðir í litlu ráðuneyti. Til að setja í samhengi, þá er þetta svipuð upphæð og rennur úr ríkissjóði til Samkeppniseftirlitsins og svipað og Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ fær. Þetta er 2,5 sinnum meira en fer í rekstur embættis ríkissáttasemjara og er um 1/4 af framlagi ríkisins til nýrrar Náttúruverndarstofnunar.“ Ríkisstjórnin hafi kastað teningnum í umhverfismálum Guðmundur Ingi segir að ríkisstjórnin, undir forystu Samfylkingarinnar, hafi kastað teningunum í umhverfismálum. Það eigi sérstaklega að greiða götu virkjana og fjarlægja varnagla úr umhverfislöggjöfinni, þrátt fyrir að Samfylkingin hafi tekið þátt í að koma þeim varnöglum í lög á sínum tíma. „Ráðherrann ætlar að virkja eftir uppskrift hægrisinnaðra hagsmunaafla með einföldun regluverks og undanþágum, eins og nýlegt frumvarp ráðherrans í kjölfar úrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur ber með sér. Þá boðar ráðherrann færri aðgerðir í loftslagsmálum. Engar aðgerðir í þágu náttúruverndar eða til verndar líffræðilegri fjölbreytni hafa verið boðaðar. Og, nú á að draga úr fjárheimildum til umhverfismála.“ Umhverfi og náttúra eigi sér greinilega enga talsmenn í ríkisstjórn sem helst stundi niðurrif í málaflokknum. Þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar gangi gegn hagsmunum samtímans og framtíðarkynslóða og séu mikil afturför í íslenskum stjórnmálum og stefnumótun hins opinbera í þágu umhverfis- og náttúruverndar.
Umhverfismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samfylkingin Vinstri græn Loftslagsmál Rekstur hins opinbera Fjárlagafrumvarp 2025 Mest lesið Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Innlent Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Innlent Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Erlent „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Innlent Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Erlent Pallborðið: Síðasta einvígið Innlent „Við getum gert það sem við viljum“ Erlent Kom ekki á teppið Innlent Fleiri fréttir Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Pallborðið: Síðasta einvígið Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ Sjá meira