Einn vinsælasti tengiltvinnbíll Íslendinga snýr aftur Hekla 31. mars 2025 09:00 Nýi Mitsubishi Outlander markar nýtt tímabil fyrir einn vinsælasta tengiltvinnbílinn á Íslandi. Hann býður upp á betri aksturseiginleika, meiri þægindi og framúrskarandi fjórhjóladrif sem hentar íslenskum vegum fullkomlega. Bíllinn verður til sýnis hjá Heklu dagana 31. mars til 5. apríl. Nýr Mitsubishi Outlander PHEV verður frumsýndur dagana 31. mars til 5. apríl í höfuðstöðvum Heklu við Laugaveg í Reykjavík. „
Þessi fjórða kynslóð Mitsubishi Outlander markar nýtt tímabil fyrir einn vinsælasta tengiltvinnbílinn á Íslandi. Hann býður upp á betri aksturseiginleika, meiri þægindi og framúrskarandi fjórhjóladrif sem hentar íslenskum vegum fullkomlega. Það hefur nú þegar verið gríðarlegur áhugi og fjöldi fólks hefur lagt inn forpantanir. Það verður því mjög spennandi að frumsýna hann í vikunni,“ segir Hlynur Hjartarson vörustjóri Mitsubishi á Íslandi. Hlynur Hjartarson er vörustjóri Mitsubishi á Íslandi. „Það er ljóst að margir Íslendingar bíða spenntir eftir að sjá nýjan Outlander enda hefur bíllinn notið gríðarlegra vinsælda hér á landi og var um árabil einn söluhæsti bíll landsins.“ Þær breytingar sem hafa verið gerðar á nýjum Outlander eru að stórum hluta tæknilegs eðlis og snúa að meiri sparneytni og afkastagetu. Bíllinn er búinn nýju og endurbættu drifkerfi sem býður upp á meiri drægni á rafmagni, kraftmikla hröðun og aukna mýkt í akstri sem veitir enn hljóðlátari og þægilegri akstursupplifun. Drægni bílsins er allt að 86 km á hreinu rafmagni (skv. WLTP), meðaleldsneytiseyðsla er 0,8 l/100km og losun koltvísýrings aðeins 18 g/km. Bíllinn býður upp á fjórhjóladrif með Super-All Wheel Control (S-AWC) kerfi, sem veitir einstakt grip og stöðugleika við allar aðstæður, hvort sem er í borgarakstri eða á krefjandi vegum landsins. Nú með 8 ára ábyrgð Með kaupum á nýjum Outlander PHEV fylgir 8 ára ábyrgð. Ábyrgðin er því framlengd um þrjú ár og endurnýjast á 12 mánaða fresti með árlegu viðhaldi og lýkur við 8 ára aldur ökutækis eða 160.000 km akstur (hvort sem kemur fyrr). Ábyrgðin nær yfir allar helstu íhluti bílsins og veitir eigendum aukið öryggi og hugarró í allt að átta ár frá kaupdegi. Nýr Outlander kemur í tvenns konar útfærslum. Invite útgáfan er vel búin og kemur meðal annars með 18" álfelgum, leðurlíkis innréttingu, rafdrifnu ökumannssæti, stafrænu mælaborði og Yamaha premium 8 hátalara hljóðkerfi. Instyle útgáfan er enn betur búin en það sem hún hefur m.a. umfram Invite er leðurinnrétting, 20" álfelgur, Yamaha Ultimate 12 hátala hljóðkerfi, rafdrifin Panorama sóllúga og fleira. Outlander er á verði frá 8.690.000 kr. Hægt er að bóka tíma í reynsluakstur hjá Heklu á www.hekla.is og hjá umboðsaðilum Heklu á Akureyri, Selfossi og Reykjanesbæ.
Vistvænir bílar Bílar Mest lesið Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Fleiri valkostir í Bónus með Salling Ný kynslóð Scania rafmagnsvörubíla er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Greiðsluáskorun Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Sjá meira