Tiger hringdi í Trump til að segja honum frá sambandinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. apríl 2025 23:31 Donald Trump með Tiger Woods þegar hann afhenti kylfingnum Medal Of Freedom orðuna. Getty/Win McNamee Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, fagnar nýju ástarsambandi Tiger Woods og Vanessu Trump. Vanessa er fyrrum tengdadóttir Trumps.
Tiger og Vanessa opinberuðu samband sitt í síðustu viku en hann er 49 ára og hún 47 ára. Vanessa var gift Donald Trump, elsta sonar Bandaríkjaforseta, frá árinu2005 til ársins 2018. Trump forseti ræddi sambandið við blaðamenn í forsetaskrifstofu sinni í Hvíta húsinu. Hann fékk að vita af því áður en almenningur komst að hinu sanna. „Ég elska Tiger og Vanessu. Við höfum spilað saman golf í nokkur skipti undanfarin mánuð. Hann er frábær maður og frábær íþróttamaður,“ sagði Donald Trump við blaðamenn en The Telegraph segir frá. Trump segir að Tiger hafi hringt sérstaklega í hann fyrir nokkrum mánuðum og sagt honum frá sambandinu. „Ég er mjög ánægður fyrir hönd þeirra beggja. Leyfum þeim að vera hamingjusöm,“ sagði Trump. Vanessa og Donald Trump yngri eignuðust fimm börn saman og sú elsta er Kai Trump sem er orðin átján ára gömul. Kai er sjálf mjög efnilegur kylfingur og hún er með yfir þrjár milljónir fylgjenda á TikTok þar sem hjálpaði til að auka vinsældir afa hennar meðal ungra kvenna. Tiger er þar með orðinn stjúpfaðir fimm barnabarna Bandaríkjaforseta.
Golf Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira