Forsetjahjónin Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason ásamt sýningarstjórunum Dagnýju Heiðdal og Ólafi Inga Jónssyni.Elísa B. Guðmundsdóttir
Á laugardaginn opnaði sýningin Ráðgátan um Rauðmagann og aðrar sögur um eftirlíkingar og falsanir á Listasafni Íslands með pomp og prakt. Halla Tómasdóttir forseti opnaði sýninguna og margt var um manninn.
„Eftirlíkingar listaverka og ýmis konar falsanir hafa þekkst frá fornu fari og enn koma upp fölsunarmál víða um lönd þar sem mikið kann að liggja undir. Á mörgum söfnum leynast vafasöm verk sem hafa ratað þar inn með margvíslegum hætti og á það einnig við um Listasafn Íslands.
Á sýningunni eru sagðar níu sögur af fölsuðum verkum sem hafa borist safninu með ýmsum hætti en öll tengjast þau hinu svonefnda stóra málverkafölsunarmáli sem hófst á síðasta tug 20. aldar. Undanfarin misseri hafa starfsmenn safnsins rannsakað þessi verk og hefur margt forvitnilegt komið í ljós.
Iðulega eru fölsuð verk og eftirlíkingar eignuð látnum listamönnum en enginn er þó óhultur fyrir glæpum af þessu tagi.
Málverkafalsanir fela meðal annars í sér skjalafals og fjársvik. Auk þess er fölsun málverka brot á höfundalögum en óheimilt er að breyta verki höfundar, þannig að höfundarheiður hans eða höfundarsérkenni séu skert.
Með þessari einstöku sýningu vill Listasafn Íslands stuðla að vitundarvakningu varðandi listaverkafalsanir hér á landi og kynna rannsóknaraðferðir sem varpa ljósi á uppruna verka,“ segir í fréttatilkynningu frá safninu.
Halla Tómasdóttir forseti Íslands opnaði sýninguna.Elísa B. Guðmundsdóttir
Safnið stendur sömuleiðis fyrir námskeiði í lok apríl undir heitinu Afhjúpun blekkingar - Um eftirlíkingar og falsanir.
„Á námskeiðinu verður m.a. fjallað um „stóra málverkafölsunarmálið“, hvernig megi meta uppruna listaverka, tæknileg vinnubrögð við rannsóknir á fölsunum útskýrð og farið yfir viðbrögð safna og stofnana við fölsuðum listaverkum,“ segir jafnframt í tilkynningunni.
Hér má sjá myndir frá opnun sýningarinnar:
Vilhjálmur Bjarnason ræðir verkin á sýningunni.Elísa B. GuðmundsdóttirHalla Tómasdóttir, forseti Íslands, glæsileg að vanda.Elísa B. GuðmundsdóttirForsetahjónin brostu breitt á safninu.Elísa B. GuðmundsdóttirIngibjörg Jóhannsdóttir, safnstjóri Listasafns Íslands ræðir við gesti.Elísa B. GuðmundsdóttirHjónin Ebba Margrét Magnúsdóttir og Séra Hjörtur Magni Jóhannsson ræða við Ármann Reynisson.Elísa B. GuðmundsdóttirRáðgátan um Rauðmagann og aðrar sögur um eftirlíkingar og falsanir hefur vakið eftirtekt og umtal.Elísa B. GuðmundsdóttirOdda Júlía Snorradóttir, safnstjóri Nýlistasafnsins, lét sig ekki vanta. Elísa B. GuðmundsdóttirHjónin Gróa Finnsdóttir og Ólafur Ingi Jónsson.Elísa B. GuðmundsdóttirGuðrún Erla Geirsdóttir, formaður Myndstefs, ásamt Veru Sveinbjörnsdóttur, framkvæmdarstjóra Myndstefs.Elísa B. GuðmundsdóttirÞað er af nógu að taka á sýningunni.Elísa B. GuðmundsdóttirHelga Kjartansdóttir setti þumalinn upp.Elísa B. GuðmundsdóttirGlæsileg!Elísa B. GuðmundsdóttirHrefna Smith í skemmtilegu samtali.Elísa B. GuðmundsdóttirIngibjörg Hannesdóttir, Greipur Gíslason, Ragnheiður Vignisdóttir, Sigurður Gunnarsson og Harpa Þórsdóttir, fyrrum safnstjóri Listasafns Íslands á góðri stundu.Elísa B. GuðmundsdóttirSigga Ólafsdóttir og Hilmar Mathiesen, ásamt dóttur sinni.Elísa B. GuðmundsdóttirBrosandi gestir.Elísa B. GuðmundsdóttirÓlafur Ingi Jónsson, forvörður, ásamt barnbarni sínu Sigrúnu Gróu.Elísa B. GuðmundsdóttirForsetahjónin sitja fyrir á mynd hjá Ármanni Reynissyni.Elísa B. GuðmundsdóttirEinar Falur Ingólfsson og Sigurður Árni Sigurðsson.Elísa B. GuðmundsdóttirSýningarstjórarnir Ólafur Ingi Jónsson og Dagný Heiðdal.Elísa B. GuðmundsdóttirListamennirnir Sadie Cook og Kaisa Luukkonen.Elísa B. GuðmundsdóttirMargt var um manninn.Elísa B. GuðmundsdóttirSýningahönnuðirnir Arnar Freyr Guðmundsson og Birna Geirfinnsdóttir hjá Studio Studio.Elísa B. GuðmundsdóttirIngibjörg Jóhannsdóttir, safnstjóri Listasafns Íslands.Elísa B. GuðmundsdóttirGlæsilegir gestir.Elísa B. GuðmundsdóttirGestir grandskoðuðu verkin.Elísa B. GuðmundsdóttirBryndís Jónsdóttir skemmti sér konunglega.Elísa B. Guðmundsdóttir
Ný sýning var opnuð í Listasafni Íslands í dag undir titlinum Ráðgátan um Rauðmagann og aðrar sögur um eftirlíkingar og falsanir. Þar eru fölsuð verk í sviðsljósinu og er hægt að bera þau saman við upprunaleg verk. Bæði verk fölsuð frá grunni og verk með falsaðri áritun.