Tifandi tímasprengjan sem grunuð er um frelsissviptingu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. maí 2025 15:45 Sigurður Almar var til umfjöllunar í Kompási árið 2023. Hann afplánaði þá fimm ára dóm fyrir frelsissviptingu og líkamsárás. Hann hefur aldrei gengist við brotunum sem dómari taldi engan vafa á. Vísir/Kompás Íslenskur karlmaður sem sætir gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa frelsissvipt erlendan ferðamann í húsnæði á Hverfisgötunni hefur endurtekið komið við sögu lögreglu. Hann er með þroskaskerðingu og hefur við afplánun fyrri dóma verið vistaður í einangrun á öryggisgöngum, fjarri öðrum föngum.
Íbúar á Hverfisgötu vöknuðu upp við það árla morguns í gær að fjölmennt lið lögreglu, þar á meðal liðsmenn sérsveitar, stóðu fyrir mikilli aðgerð fyrir utan hús í götunni. Karlmaður um fertugt var handtekinn grunaður um að hafa haldið erlendum ferðamanni í gíslingu í nokkrar klukkustundir. Langur brotaferill Hinn handtekni heitir Sigurður Almar og var til umfjöllunar í Kompási árið 2023 þegar hann afplánaði fimm ára dóm á Litla-Hrauni. Þar var einnig rætt við móður hans sem hafði áhyggjur af syni sínum, bæði innan veggja fangelsisins en ekki síður þegar hann væri búinn að afplána dóm sinn. Sigurður var á sínum tíma í öryggisvistun í Rangárseli í Breiðholti. Hann var meðal annars dæmdur fyrir ofbeldi í garð starfsmanna öryggisvistunar sinnar. Þá hafa fleiri fórnarlömb Sigurðar stigið fram vegna brota hans. Ásmundur Rúnar Gylfason aðstoðaryfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu tjáði fréttastofu í morgun að aðgerðir á Hverfisgötu í gær hefðu gengið vel og tekið um tvær klukkustundir. Eva Hauksdóttir, verjandi Sigurðar Almars, hefur kært gæsluvarðhaldið yfir Sigurði til Landsréttar. Skjólstæðingur hennar eigi ekki heima í fangelsi og vistun hans þar fari gegn hugmyndum um réttarríkið. Betur færi á að vista hann á viðeigandi stofnun. Tifandi tímasprengjur um alla borg Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu - félags fanga, hefur sagt að á götum Reykjavíkurborgar séu um tuttugu manns sem séu tifandi tímasprengjur. Hann nefndi sem dæmi karlmann sem sætir gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa orðið móður sinni að bana. Hann hafði skömmu áður lokið afplánun fyrri dóms. „Hættan af þessum mönnum var þekkt og Afstaða búin að vara ítrekað við hvað myndi hugsanlega gerast og því hefði verið hægt að koma í veg fyrir að svona færi ef gripið hefði verið til viðeigandi aðgerða,“ sagði í yfirlýsingu Afstöðu í október. Þrátt fyrir ítrekaðar viðvarandi samtakanna og annarra sérfræðinga hefði verið skortur á úrræðum fyrir einstaklinga sem losna úr fangelsi en þurfa á sértækum stuðningi að halda til að tryggja bæði þeirra eigið öryggi og samfélagsins alls. Fram kom á dögunum að kostnaður Reykjavíkurborgar vegna öryggisúrræða fyrir um 35-40 einstaklinga væri ríflega einn milljarður. Á sama tíma var sértækur húsnæðisstuðningur borgarinnar til 4500 manns um einn og hálfur milljarður króna. Þá er heildarkostnaður vegna öryggisráðstafana tveggja einstaklinga í Mosfellsbæ tæplega hundrað og níu tíu milljónir króna á ári samkvæmt upplýsingum frá sveitarfélaginu. „Þetta er mikill kostnaður sem leggst á borgina fyrir verkefni sem er ekki lögbundið verkefni sveitarfélagsins. Við myndum gjarnan vilja nýta þessa fjármuni í lögbundin verkefni hjá okkur,“ sagði Rannveig Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar í fréttum Stöðvar 2 í apríl. Hún sagði borgina sinna verkefni sem henni bæri ekki að sinna. Þeir einstaklingar sem sættu öryggisvistun væru í flestum tilfellum fullorðnir með fjölþættan vanda. Verkaskiptin milli ríkis og sveitarfélaga hefði verið afar óskýr í málaflokknum. Skortur væri á úrræðum af hálfu ríkisins fyrir hópinn sem hefði kallað á ýmsan kostnað til að stuðla að öryggi viðkomandi einstaklinga og starfsmanna sem sinntu fólkinu. „Það vantar í raun alla lagaumgjörð í kringum þennan málaflokk. Það hefur verið kallað eftir henni í allt að áratug. Það er nauðsynlegt að breyta lögum,“ sagði Rannveig. Ríkisstjórnin kynnti á dögunum úrbætur í málaflokknum. Fjölga á plássum á réttaröryggisdeild um átta og koma á fót sérstakri öryggisstofnun fyrir hópinn. Engin tímasetning hefur komið fram um hvenær það verður. „Slík öryggisstofnun hefði átt að vera tilbúin fyrir löngu síðan. En ég fagna því að eitthvað sé að hreyfast í málaflokknum. Vonandi sjáum við slíka stofnun sem allra fyrst,“ sagði Rannveig. „Við erum að sjá fleiri einstaklinga sem þurfa á öryggisráðstöfunum að halda en áður. Skýringarnar gætu verið harðari neysla en áður og að stofnunum sem sinntu málaflokknum hefur verið lokað á síðustu árum,“ segir hún. Sigurður Páll Pálsson, yfirlæknir réttar- og öryggisgeðþjónustu Landspítalans, sagði á dögunum óvíst hvort fjölgun rýma á deildinni muni nægja enda fari hópur þeirra sem þurfi að vista sístækkandi. Hann fagnaði verðandi öryggisstofnun. „Á öryggisdeildinni eru þeir sem eru sviptir sjálfræði og þurfa þess vegna á aðstoð vegna geðræns sjúkdóms en á réttargeðdeildinni eru þeir sem hafa verið dæmdir en hafa í raun og veru sama vanda. Við höfum haft þarna tvær deildir með átta rýmum og þetta er eiginlega sprungið, það má segja það. Bæði fólksfjölgun og meiri vandi í þjóðfélaginu. Þannig að ég er bara kampakátur að þetta verði gert.“ Hann sagði þann hóp sem þurfi að vista á öryggisgeðdeild fara sístækkandi. Það ætti rætur sínar að rekja til aukinnar neyslu fíkniefna í samfélaginu. „Þetta hefur verið ljóst núna í þrjú, fjögur ár, að við þurfum meiri úrræði. Því þetta er fjölþættari vandi en var og það er meiri neysla. Fólk gleymir því þegar það er verið að tala um fíkniefni að langtíma fíkniefnanotkun, leiðir þig í flestum tilfellum til geðrofssjúkdóma sem leiðir til þess að fólk geri slæma hluti.“ Óljóst væri hvort tvöföldun rýma myndi nægja. „Við erum með þrefalt færri svona öryggis- og réttpláss en nágrannaþjóðirnar. Þannig svarið miðað við hinar þjóðirnar; Þetta er ekki nóg. En við erum þakklát að fá þó þetta, því það munar um öll pláss.“ Hann vonaðist til að nýju rýmin yrðu opnuð sem fyrst en ekki lægi fyrir hvort fjölga þyrfti starfsfólki á deildinni. „Við fáum betri aðstöðu sem breytir svo miklu um hagræðingu og hvernig vinnuafl nýtist. Inn í gömlu deild verður hönnuð nýtískuleg deild. Staðsetningin á Kleppi er líka góð, því hún er ekki alveg inn í miðborginni heldur meira þar sem eru græn svæði. Þegar við náum fólki úr bráðageðrofi getum við byrjað endurhæfingu. Við erum með góða íþróttaaðastöðu og fólk getur farið í göngutúra án þess að vera ónáða.“
Lögreglumál Reykjavík Geðheilbrigði Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lækkar eigin laun Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Sjá meira