Innlent

Átta ára fangelsi í sögu­legu fíkniefnamáli

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Sigurður Kristinsson hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi í stærsta kristal-am­feta­mín­mál sögunnar. Hann var árið 2019 dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir aðild að Skáksambandsmálinu svokallaða, sem varðaði innflutning á fimm kílóum af amfetamíni til Íslands frá Spáni í janúar 2017.
Sigurður Kristinsson hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi í stærsta kristal-am­feta­mín­mál sögunnar. Hann var árið 2019 dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir aðild að Skáksambandsmálinu svokallaða, sem varðaði innflutning á fimm kílóum af amfetamíni til Íslands frá Spáni í janúar 2017. Vísir/Villi

Héraðsdóm­ur Reykja­vík­ur hef­ur dæmt Sig­urð Krist­ins­son í átta ára fang­elsi í stærsta kristal-am­feta­mín­mál Íslands­sög­unn­ar. Fjórir hinna meðákærðu munu einnig sæta fang­elsis­vist en einn, sem nefndur er Y í dómnum, hefur verið sýknaður.

Sex­menn­ing­arn­ir, sem allir neituðu sök, voru ákærðir fyr­ir skipu­lagða brot­a­starf­semi og stór­fellt fíkni­efna­laga­brot, sem ákærðu sam­mælt­ust um að fremja, með því að hafa staðið sam­an að inn­flutn­ingi á 5,733 kílóum af metam­feta­mín-kristöll­um.

Efn­in, sem voru með 81 prósent styrkleika í metamfetamínbasa sem samsvarar 100 prósent metamfetamínklóríði, voru fal­in í Jagúar-bíl af gerðinni Daimler Dou­ble Six sem kom til Þor­láks­hafn­ar 11. októ­ber með flutn­inga­skip­inu Myk­ines frá Rotter­dam í Hollandi.

Lög­regla lagði hald á fíkni­efn­in þegar bíllinn kom til landsins og skipti þeim út fyr­ir gervi­efni áður en bíllinn var af­hentur þremur mannanna, Sig­fús Bergmann Svavarssyni, Baldri Þór Sigurðssyni og Y, þann 24. októ­ber. 

Mennirnir færðu síðan þeim fjórða, Ag­urim Xixa, bílinn í Reykja­vík þar sem hann reyndi ár­ang­urs­laust að fjar­lægja efn­in úr bílnum. Dag­inn eft­ir flutti Agurim bílinn, ásamt Sig­urði Kristinssyni, að hest­húsa­hverfi þar sem Sig­urður rétti Ag­urim og konu efn­in og þau báru efn­in inn í nær­liggj­andi hest­hús.

Lesa má ítarlega um framvindu málsins í yfirferð fréttastofu af aðalmeðferð málsins frá því í mars.

Fylgdust með þeim í tvær vikur

Fram kemur í dómnum, sem féll þann 28. apríl, að málsatvik séu að mestu óumdeild og á meðal helstu sönnunargagna séu samtímagögn með hljóðupptökum af samtölum ákærðu, myndbandsupptökum, ljósmyndum og upptökum af símtölum milli ákærðu, sem gefi „nokkuð glögga mynd“ af atburðarásinni.

Lögreglan hafi þannig aflað dómsúrskurða sem veittu heimild til þess að koma fyrir hljóð- og myndupptökubúnaði undir Daimler-bílnum og komið fyrir hljóðupptökubúnaði í bíl Sigfúsar, sem hann og ákærðu, Baldur og Y, héldu til í.

Lögregla hafði því fylgst náið með ferðum ákærðu í tvær vikur, frá því Daimler-bíllinn kom til landsins 11. október 2024 og þar til þeir voru handteknir 25. október.

Fimm hljóta dóm en einn sýknaður

Niðurstöður dómsins eru eftirfarandi.

Sigurður Kristinsson hlýtur átta ára fangelsisdóm og er gert að greiða þrjá fjórðu hluta sakarkostnaðar, samtals 9.229.714 krónur.

Agurim Xixa hlýtur fimm ára og sex mánaða fangelsisdóm og er gert að greiða þrjá fjórðu hluta sakarkostnaðar,  samtals 9.335.310 krónur.

Baldur Þór Sigurðarson hlýtur fjögurra ára fangelsisdóm og er gert að greiða þrjá fjórðu hluta sakarkostnaðar, samtals 9.338.140 krónur.

Sigfús Bergmann Svavarsson hlýtur þriggja ára og sex mánaða fangelsisdóm og er gert að greiða þrjá fjórðu hluta sakarkostnaðar, samtals 9.849.094 krónur.

Þá hlýtur kona tíu mánaða dóm en fresta skal fullnustu refsingarinnar og fellur hún niður að þremur árum liðnum haldi hún skilorð. 

Maðurinn sem nefndur er Y í dómnum er sýknaður af kröfum ákæruvaldsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×