Ökumenn sektaðir vegna notkunar nagladekkja Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 24. maí 2025 07:24 Óheimilt er að aka á nagladekkjum frá 15. apríl til 31. október. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sektaði talsverðan fjölda ökumanna í gærkvöldi og nótt fyrir ýmis umferðarlagabrot, meðal annars vegna notkunar nagladekkja.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar, þar sem segir að lögregla hafi einnig sektað ökumenn fyrir akstur án ökuréttinda, of hraðan akstur og vöntun á skráningarmerkjum framan á ökutækjum. Einhverjir hafi verið sektaðir vegna filma í fremri hliðarrúðum ökutækjanna. Þá hafi eitthvað verið um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Frá og með 15. apríl er óheimilt að aka á nagladekkjum og hafa ökumenn því haft rúman mánuð til að skipta. Lögregla sagðist í síðasta mánuði hefja að beita sektum vegna aksturs á nagladekkjum þann 5. maí. Fram kemur í dagbók lögreglu að í póstnúmeri 105 hafi einstaklingur verið handtekinn í nótt vegna tilraunar til fjárkúgunar. Viðkomandi hafi verið látinn laus að lokinni skýrslutöku. Í sama hverfi hafi einstaklingur verið handtekinn og vistaður í fangaklefa vegna líkamsárásar. Sá hafi verið í annarlegu ástandi vegna neyslu fíkniefna og bíði skýrslutöku. Þá var lögreglu tilkynnt um hóp ungmenna með ógnandi tilburði sem áreitti fólk í Neðra-Breiðholti. Fram kemur að málið hafi verið unnið með aðkomu barnaverndar.
Nagladekk Lögreglumál Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira