Besti árangur Andreu á tímabilinu: Var með forystuna en endaði í fjórða sæti Ágúst Orri Arnarson skrifar 31. maí 2025 13:12 Andrea Bergsdóttir er að taka þátt á LET Access mótaröðinni í fyrsta sinn. santander golf tour Andrea Bergsdóttir náði sínum besta árangri á tímabilinu þegar hún hafnaði í fjórða sæti á Santander golfmótinu á LET Access mótaröðinni. Andrea var í efsta sæti fyrir lokahringinn á Naturavila golfvellinum í dag en endaði einu höggi á eftir efstu þremur kylfingunum.
Eftir tvo hringi var Andrea efst, sjö höggum undir pari. Hún lék fyrsta hring mótsins á 68 höggum og fór annan hringinn í gær á 69 höggum. Í dag fór Andrea hringinn á 71 höggi þannig að hún endaði mótið átta höggum undir pari. Hún missti efsta sætið frá sér með tvöföldum skolla á sjöundu holu. Þrír kylfingar enduðu jafnir, níu höggum undir pari, í efsta sætinu og eru á leið í umspil. Ragnhildur Kristinsdóttir tók einnig þátt í mótinu og hafnaði í átjánda sæti, tveimur höggum undir pari. Þetta var fimmta mót Andreu á LET Access mótaröðinni á þessu tímabili, besti árangur hennar fram að þessu var 23. sæti á Terre Blance mótinu í Frakklandi. Fyrir mótið var hún í 55. sæti heildarstigalistans en mun hækka eftir helgi. Í lok tímabils fá efstu sjö kylfingarnir á stigalista LET Access mótaraðarinnar fá fullan þátttökurétt á LET mótaröðina á næsta tímabili. Kylfingarnir í 8.-32. sæti komast beint í lokaúrtökumótið og eiga bæði möguleika á fullum og skilyrtum þáttökurétt í mótaröðinni.
Golf Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira