Aftur logar eldur í Læradal Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 7. júní 2025 10:05 Minnst þrjú hús eru skemmd. Lærdal kommune Eldar loga í miðbæ Læradals í Sogn- og Firðafylki í Noregi. Minnst fjögur hús hafa orðið eldinum að bráð og slökkviliðið hefur ekki stjórn á honum. Tíu ár eru liðin síðan allt að 30 hús í bænum brunnu til kaldra kola og 52 voru lagðir inn á sjúkrahús.
Í janúar ársins 2014 kviknaði eldur í gamla bænum í Læradal. Tugir húsa urðu eldinum að bráð og slökkviliðið átti fullt í fangi með að ná stjórn á eldsvoðanum vegna slæmra veðurskilyrða. Um fjórðungi bæjarins var gert að yfirgefa heimii sín. Nú hefur eldur kviknað í gamla bænum á nýjan leik. Samkvæmt nýjustu fréttum VG loga nú fjögur hús og slökkviliðið hefur ekki náð stjórn á eldinum. Kommúnan hefur komið upp sérstöku viðbraðgsteymi. Engan hefur sakað samkvæmt norskum miðlum. Eldurinn kom upp í gömlu húsi í miðbæ Læradalseyrar, elsta hluta bæjarins, og því eru mikil söguleg verðmæti í hættu. Eldurinn hefur breitt úr sér til þriggja annarra húsa en öll eru þétt upp hvort við annað. Þrjú húsanna hafa orðið fyrir altjóni. Slökkviliðsstjóri sem VG ræddi við segir að þrátt fyrir að slökkviliðinu hafi ekki enn tekist að ráða niðurlögum eldsins sé engin hætta á að hann dreifi frekar úr sér og úr verði hörmungarástand líkt og fyrir tíu árum síðan. Þrjátíu manns hefur verið gert að yfirgefa heimili sín og þau eru í skjóli á gistihúsi í nágrenninu. Unnið er að því að koma fólki undan Eyrargötu, þar sem eldurinn kom upp. Ekki hefur verið tilkynnt um að neins sé saknað en lögregla viðurkennir að enn ríki hálfgert „upplausnarástand.“ „Við erum að tala um 250 ára sögu. Þetta er mjög, mjög sorglegt,“ segir íbúi á svæðinu í samtali við VG. Annar íbúi segist hafa verið í búðinni þegar hann varð var við reykinn sem barst úr elstu húsum bæjarins. „Þetta eru allra elstu byggingarnar í bænum. Við vorum hrædd um að þær færu í stórbrúnanum 2014, og nú loga þær. Þetta er alveg hræðilegt,“ segir hann.
Noregur Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Fleiri fréttir Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Sjá meira