Seinkun fréttatímans seinkað Árni Sæberg skrifar 1. júlí 2025 14:03 Heiðar Örn Sigurfinnsson, fréttastjóri Ríkisútvarpsins. Vísir/Vilhelm Kvöldfréttir Ríkisútvarpsins færast ekki til klukkan 20 þegar EM kvenna í fótbolta lýkur, líkt og tilkynnt hafði verið um. Enn stendur þó til að seinka fréttatímanum. Í kvöld verður síðasti tíufréttatíminn lesinn í sjónvarpi allra landsmanna.
Á morgun hefst EM kvenna í fótbolta og því verður kvöldfréttatíma Rúv seinkað til klukkan 21 á meðan á mótinu stendur, líkt og var gert í fyrra þegar karlarnir kepptu á EM. Nú líkt og þá verða engar tíufréttir en munurinn er sá að að loknu móti hefst lestur tíufrétta ekki á ný. Því verður síðasti tíufréttatíminn í kvöld, líkt og tilkynnt var í apríl síðastliðnum. Samhliða tilkynningu um brotthvarf tíufréttanna var tilkynnt að kvöldfréttir, sem hafa í fjölda ára verið á dagskrá klukkan 19, yrðu færðar til klukkan 20 frá og með 24. júlí næstkomandi. Í umfjöllun um seinni fréttir á vef Ríkissjónvarpsins segir að fyrri, og verðandi einu, fréttum verði ekki seinkað að sinni. Í samtali við Vísi segir Heiðar Örn Sigurfinnsson, fréttastjóri Ríkisútvarpsins, að ekki hafi verið hætt við að seinka fréttatímanum. Áformunum hafi aðeins verið seinkað þar sem ekki hefði tekist að klára nauðsynleg verkefni tengd breytingunum fyrir sumarfrí.
Ríkisútvarpið Fjölmiðlar Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Fleiri fréttir Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Birti ekki dánartilkynninguna: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Sjá meira