Rúmlega 200 ökumenn sektaðir og átta sviptir vegna hraðaksturs Lovísa Arnardóttir skrifar 8. júlí 2025 14:20 Horft til suðurs á Kringlumýrarbraut. Vegagerðin Átta ökumenn eiga yfir höfði sér sviptingu ökuréttinda, auk sektar, og 246 ökumenn til viðbótar von á sekt vegna hraðaksturs við framkvæmdasvæði hjá Kringlumýrarbraut á vegarkafla á milli Háaleitisbrautar og Miklubrautar á móts við Bólstaðarhlíð. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Þar kemur fram að þeir þrír sem eigi von á því að vera sviptir ökuréttindum hafi ekið á meira en 70 kílómetra hraða á klukkustund og fimm á yfir 60 kílómetra hraða. Lögreglan var við eftirlit á myndavélabíl sínum í klukkustund og fylgdist með ökumönnum sem óku Kringlumýrarbraut til suðurs. Svona mun vegarkaflinn líta út. Vísir/Sara Fram kemur í tilkynningu að meðalhraði hinna brotlegu hafi verið 48 kílómetrar á klukkustund en hámarkshraði á þessu svæði er 30 núna vegna framkvæmdanna en þar er verið að bæta við sérstakri akrein fyrir Strætó. Lögreglan var við hraðamælingar á sama stað í síðustu viku og fengu þá 322 ökumenn sekt vegna hraðaksturs. „Eftir vöktunina eiga 322 ökumenn von á sekt, en meðalhraði hinna brotlegu var 49. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kringlumýrarbraut til norðurs og var brotahlutfallið 41%. Sjö óku á vel yfir 60 og fimm á meira en 70, en allir tólf ökumennirnir eiga yfir höfði sér sviptingu ökuréttinda, auk sektar,“ sagði í tilkynningu lögreglunnar fyrir viku síðan.
Umferð Umferðaröryggi Strætó Reykjavík Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjá meira