Lyfta fólki upp til að skrifa á Jota minningarvegginn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. ágúst 2025 12:32 Margir hafa skrifað á minningarvegg um Diogo Jota en nú er búið að búa til meira pláss fyrir kveðjur. Getty/Craig Foy/@theredmentv Stuðningsfólk Liverpool hefur minnst portúgalska knattspyrnumannsins Diogo Jota með margs konar hætti síðustu vikur og félagið hefur tekið númerið tuttugu úr umferð. Hann fær líka varanlegan helgan stað í nágrenni heimavallar Liverpool liðsins.
Eitt af því áhrifamesta í nágrenni Anfield er nú stór og glæsileg veggmynd af Jota. Minningarveggurinn um Jota er staðsettur rétt hjá Anfield og hann er enn í vinnslu. Eftir að Jota lést í bílslysi ásamt bróður sínum þá var ákveðið að taka þennan vegg frá fyrir málaða mynd af Jota. Margar goðsagnir í sögu Liverpool eiga sinn vegg í nágrenni leikvangsins. Fljótlega fór fólk að koma á staðinn og skrifa minningarorð um Jota á vegginn. Svo mikil var aðsóknin að neðri hluti veggjarins fylltist fljótt með minningarorðum. Stefnan var síðan sett að mála stóra mynd af Jota fyrir ofan. Myndin af Jota er nú komin á vegginn en það er enn pláss í kringum hann. Þeir sem standa á bak við þennan minningarvegg um Jota ætla því að halda áfram að safna minningarorðum. Til þess að fólk nái ofar á vegginn hafa þeir tekið í notkun lyftara sem lyftir fólki upp til að skrifa á Jota minningarvegginn eins og sjá má hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by The Redmen TV (@theredmentv)
Enski boltinn Andlát Diogo Jota Mest lesið Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Fótbolti Lést aðeins nokkrum vikum eftir að hann var rekinn úr hópi HM-dómara Fótbolti Uppgjör: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Sá gamli tryggði Blikum sigurinn Íslenski boltinn Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Fótbolti Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Íslenski boltinn McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti Fleiri fréttir Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Sjá meira