Samdi við kríuna um að koma sér á brott Valur Páll Eiríksson skrifar 8. ágúst 2025 10:01 Ólafur Þór Ágústsson, framkvæmdastjóri GK, samdi við kríuger að yfirgefa svæðið vegna Íslandsmótsins. Samsett/Vísir/Ívar Íslandsmótið í golfi hófst á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði í gærmorgun og hefur sérlega mikið verið lagt í umgjörð mótsins í ár.
Glimrandi aðstæður og gott veður tók við kylfingum er þeir hófu leik á Íslandsmótinu í gærmorgun. Hvaleyrarvöllur hefur tekið töluverðum breytingum undanfarin ár og seinni níu holurnar, þar sem allt ræðst, meira og minna nýjar. Sérlega mikil vinna hefur þá verið lögð í aðstöðu áhorfenda á Íslandsmótinu í ár þar sem búið er að koma upp risaskjá við flötina á 15. braut og veitingatjaldi við 14. flöt. „Við höfum verið að reyna að gera betur við áhorfendur sérstaklega. En að sjálfsögðu kylfinga líka, við erum með ellefu forverði, sem fylgjast með upphafshöggunum og hjálpa kylfingum úti á velli,“ segir Ólafur Þór Ágústsson, framkvæmdastjóri golfklúbbsins Keilis. „Við höfum lagt meira í innviði fyrir áhorfendur. Á risaskjánum má sjá stöðu ráshópa, stöðu í mótinu og tölfræði hjá einstaklingum sem eru að spila vel. Svo er veitingatjald eða fan zone þar sem fólk getur komið út á miðja Hvaleyri, fengið sér léttan snæðing, og þá ertu kominn ofan í síðustu fimm eða sex lokaholurnar á Íslandsmótinu í golfi,“ bætir Ólafur við. Á blettinum þar sem tjaldið er staðsett hefur heljarinnar kríuger gert kylfingum lífið leitt í sumar. Hún er nú á bak og burt. „Við flugum saman og komumst að samkomulagi að hún myndi fara. Og hún er farin,“ segir Ólafur léttur. Seinni níu gjörbreyttar Það var eftir því tekið að kylfingar áttu til að lenda í vandræðum á síðari níu holum vallarins, sem eru nýlega lagðar. Ríkjandi Íslandsmeistari, Aron Snær Júlíusson, fékk til að mynda skramba og skolla á 16. og 17. braut. „Það er búið að breyta öllum holum á seinni níu nema einni á síðustu árum. Nú er verið að keppa á Íslandsmótinu í golfi í fyrsta skipti á seinni níu. Það verður skemmtilegt að sjá hvernig það kemur út,“ segir Ólafur. Axel Bóasson og Dagbjartur Sigurbrandsson leiða keppni karla eftir fyrsta daginn, á fimm undir pari vallar. Þar á eftir koma þeir Tómas Eiríksson Hjaltested og Sigurður Arnar Garðarsson, höggi á eftir. Í kvennaflokki eru þær Karen Lind Stefánsdóttir og Hulda Clara Gestsdóttir efstar á tveimur undir pari en Elsa Maren Steinarsdóttir og Heiðrún Anna Hlynsdóttir höggi á eftir. Annar dagur mótsins fór af stað snemma í morgun en efstu kylfingar halda ekki út á völl fyrr en eftir hádegið. Skorið verður niður eftir hring dagsins.
Íslandsmótið í golfi Hafnarfjörður Golf Golfvellir Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Fleiri fréttir „Ég ætla ekki að segja neitt sem ég má ekki segja“ Rory var „fastur í hlutlausum“ allt mótið og segist vera á leið í frí „Ég fann ekki fyrir neinu við púttið því allt skalf svo mikið“ Scheffler segir DeChambeau „klárlega ekki vera svindlara“ Fox sýndi stáltaugar og vann sitt fyrsta risamót Young flaug inn í toppbaráttuna og Scheffler skammt undan Aron og Guðrún með forystu fyrir lokahringinn McIlroy pirraður á athyglissjúkum DeChambeau Burns leiðir á Birkdale og líkur á sögulegum sigri Sá þriðji sem jafnar vallarmetið Púttin að leika Scheffler grátt DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti DeChambeau einu höggi frá toppsætinu eftir fugla á lokaholunum Íslendingar í stórum hlutverkum á The Open Tveir kylfingar jafna besta hringinn á risamóti Stuttu pútti frá besta hring sögunnar „Of mörg heimskuleg mistök“ Hafði aldrei komið til Evrópu en nú er hann efstur á Opna breska Vonar að hann fái að halda áfram að reykja „Er það ekki fullkominn dagur? Golf og fótbolti“ „Ég sef í bílnum ef ég þarf“ „Ég er svo lélegur í golfi“ Ragnhildur hlaut hálfa milljón í þriðja sæti í Englandi Gunnlaugur Árni íþróttakarl ársins í LSU Íslensku liðin hófu leik á Evrópumótinu í holukeppni Gunnlaugur Árni vann Arnold Palmer-bikarinn Tveir íslenskir kylfingar í efstu tíu sætunum Bjargaði fugli úr tjörn í miðjum golfhring Fá að skoða sjúkraskrár Tigers Woods Níu ára fór holu í höggi með ömmu og afa Sjá meira