Bæði systkinin í lokaráshóp á lokadegi Íslandsmótsins í golfi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. ágúst 2025 10:42 Systkinin Dagbjartur Sigurbrandsson og Perla Sól Sigurbrandsdóttir verða bæði í lokaráshópum á lokadeginum. GSÍ myndir Íslandsmótið í golfi klárast á Hvaleyrinni í dag. Þetta er stór dagur fyrir eina fjölskyldu sem á tvo fulltrúa í baráttunni um Íslandsmeistaratitlana.
Systkinin Dagbjartur Sigurbrandsson og Perla Sól Sigurbrandsdóttir verða bæði í lokaráshópum á lokadeginum. Hin nítján ára Perla Sól verður í lokaráshóp hjá konunum með Huldu Clöru Gestsdóttur og Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur. Þær fara af stað klukkan 12.56. Hinn 23 ára Dagbjartur verður í lokaráshóp hjá körlunum með Axel Bóassyni og Aroni Snæ Júlíussyni. Þeir fara af stað klukkan 12.34. Perla Sól er á sex höggum yfir pari eftir þrjá daga, sex höggum á eftir Huldu og einu höggi á eftir Guðrúnu. Dagbjartur er á fimm höggum undir pari, tveimur höggum á eftir Axel og tveimur höggum á undan Aroni. Þau systkinin eru samt ekki í sama golfklúbbi, því Perla er í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar en Dagbjartur er í Golfklúbbi Reykjavíkur. Dagbjartur hefur aldrei orðið Íslandsmeistari en Perla varð Íslandsmeistari fyrir þremur árum síðan. Þá var hún aðeins fimmtán ára og sama ár varð hún síðan Evrópumeistari sextán ára og yngri.
Golf Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Liverpool - Arsenal | Englandsmeistararnir mæta í Bítlaborgina Sport Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira