NATO og Rússland „augljóslega“ í stríði Samúel Karl Ólason skrifar 15. september 2025 15:46 Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, og Vladimír Pútín, foseti. AP/Alexander Kazakov, Sputnik Atlantshafsbandalagið og Rússland eiga „augljóslega“ í stríði. Þetta sagði Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, við blaðamenn í Moskvu í morgun. Stuðningur margra ríkja NATO við Úkraínu jafngilti að bandalagið væri í raun og veru stríð við Rússland. Það væri augljóst að stríðsástand ríkti.
Ummælin lét Peskóv falla eftir að Radoslaw Sikorski, utanríkisráðherra Póllands, sem var staddur í Kænugarði í Úkraínu, sagði að NATO væri ekki í stríði við Rússa. Það sagði hann eftir að rússneskum drónum var flogið inn í lofthelgi Póllands, þar sem þeir brotlentu eða voru skotnir niður. Rússneskir drónar hafa einnig farið inn í lofthelgi Rúmeníu, sem er einnig í NATO. „NATO er að berjast við Rússland. Það er augljóst og það er engin þörf á frekari sönnun. NATO er í raun þátttakandi í stríðinu.“ Þetta sagði Peskóv, samkvæmt frétt RIA fréttaveitunnar, sem er í eigu rússneska ríkisins. Hann vísaði til þess að þess að ríki NATO aðstoðuðu Úkraínumenn með óbeinum og með beinum hætti. Undanfarin ár hafa Rússar ítrekað sagt að þeir séu að berjast við allt NATO í Úkraínu og að málaliðar frá ríkjum Atlantshafsbandalagsins væru í Úkraínu. Því hefur einnig verið haldið fram að íslenskir málaliðar hafi barist í Úkraínu. Evrópa átti sig ekki á grunnástæðum stríðsins Þá sagði Peskóv einnig í morgun að Úkraínumenn hefðu ekki áhuga á „alvarlegum“ viðræðum við Rússa og gaf til kynna að friðarviðræður myndu ekki fara fram að svo stöddu, eins og Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur ítrekað kallað eftir. Peskóv sakaði einnig Vesturlönd um að standa í vegi friðar, samkvæmt rússneska útlagamiðlinum, Medizona. Ekki væri búið að semja um frið því Evrópa áttaði sig ekki á „grunnástæðum“ þessa stríðs. Peskóv hefur áður slegið á svipaða strengi, eins og aðrir ráðamenn í Rússlandi. Þar á meðal Pútín. Pútín gerði það til dæmis fyrr í þessum mánuði, þegar hann sagði að vestrænir hermenn í Úkraínu yrðu lögmæt skotmörk rússneska hersins. Þá ítrekaði Peskóv í kjölfarið að Rússar væru óvinir NATO. Þegar ráðamenn í Rússlandi tala um „grunnástæður“ stríðsins eru þeir að vísa til krafna þeirra um að ríkjum Austur-Evrópu verði vísað úr NATO.
Rússland Vladimír Pútín Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður NATO Úkraína Pólland Rúmenía Donald Trump Tengdar fréttir Stórauka útgjöld til varnarmála Ríkisstjórn Svíþjóðar tilkynnti í morgun að fjárútlát til varnarmála yrðu stóraukin á næsta ári um 26,6 milljarða sænskra króna. Þannig munu fjárútlátin fara úr 148 milljörðum í um 175 milljarða eða um 2,8 prósent af vergri landsframleiðslu Svíþjóðar. 15. september 2025 13:33 Íslendingur dæmdur í þrettán ára fangelsi í Rússlandi Rússneskur dómstóll hefur dæmt nokkra meðlimi listahópsins Pussy Riot til langrar fangelsisvistar fyrir að vanvirða rússneska herinn. Þar á meðal er Mariia Alekhina, eða Masha, sem er íslenskur ríkisborgari. Fimm konur voru dæmdar í morgun en engin þeirra er í Rússlandi. 15. september 2025 11:09 Kalla rússneska sendiherrann á teppið Rúmenar kölluðu rússneska sendiherrann á teppið eftir að rússnesk flygildi rufu rúmenska lofthelgi í gær og þar með Atlantshafsbandalagsins. Litið er á atvikið og svipað atvik í Póllandi fyrr í vikunni sem ögrun af hálfu Rússa. 14. september 2025 19:12 Skipar NATO-ríkjum að hætta að kaupa olíu af Rússum Donald Trump Bandaríkjaforseti segist tilbúinn að ráðast í þungar refsiaðgerðir gegn Rússlandi ef öll aðildarríki Atlantshafsbandalagsins hætta að kaupa olíu af Rússlandi. Tyrkland er eitt af stærstu kaupendum rússneskrar olíu. 13. september 2025 16:40 Rándýrar herþotur og flugskeyti gegn ódýrum drónum Úkraínumenn hafa um árabil varist svo gott sem daglegum árásum Rússa með sjálfsprengidróna og eldflaugar. Til þessa notast þeir marglaga varnir en þróun þessara varna hefur að miklu leyti gengið út á að draga eins og hægt er úr kostnaði við varnirnar en drónarnir eru tiltölulega ódýrir í framleiðslu og flugskeyti í loftvarnarkerfi og herþotur eru það alls ekki. 11. september 2025 18:53 Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Sjá meira
Stórauka útgjöld til varnarmála Ríkisstjórn Svíþjóðar tilkynnti í morgun að fjárútlát til varnarmála yrðu stóraukin á næsta ári um 26,6 milljarða sænskra króna. Þannig munu fjárútlátin fara úr 148 milljörðum í um 175 milljarða eða um 2,8 prósent af vergri landsframleiðslu Svíþjóðar. 15. september 2025 13:33
Íslendingur dæmdur í þrettán ára fangelsi í Rússlandi Rússneskur dómstóll hefur dæmt nokkra meðlimi listahópsins Pussy Riot til langrar fangelsisvistar fyrir að vanvirða rússneska herinn. Þar á meðal er Mariia Alekhina, eða Masha, sem er íslenskur ríkisborgari. Fimm konur voru dæmdar í morgun en engin þeirra er í Rússlandi. 15. september 2025 11:09
Kalla rússneska sendiherrann á teppið Rúmenar kölluðu rússneska sendiherrann á teppið eftir að rússnesk flygildi rufu rúmenska lofthelgi í gær og þar með Atlantshafsbandalagsins. Litið er á atvikið og svipað atvik í Póllandi fyrr í vikunni sem ögrun af hálfu Rússa. 14. september 2025 19:12
Skipar NATO-ríkjum að hætta að kaupa olíu af Rússum Donald Trump Bandaríkjaforseti segist tilbúinn að ráðast í þungar refsiaðgerðir gegn Rússlandi ef öll aðildarríki Atlantshafsbandalagsins hætta að kaupa olíu af Rússlandi. Tyrkland er eitt af stærstu kaupendum rússneskrar olíu. 13. september 2025 16:40
Rándýrar herþotur og flugskeyti gegn ódýrum drónum Úkraínumenn hafa um árabil varist svo gott sem daglegum árásum Rússa með sjálfsprengidróna og eldflaugar. Til þessa notast þeir marglaga varnir en þróun þessara varna hefur að miklu leyti gengið út á að draga eins og hægt er úr kostnaði við varnirnar en drónarnir eru tiltölulega ódýrir í framleiðslu og flugskeyti í loftvarnarkerfi og herþotur eru það alls ekki. 11. september 2025 18:53