Innherji

Er­lend staða ís­lenska þjóðar­búsins ein sú besta meðal ríkja í Evrópu

Hörður Ægisson skrifar
Fyrir lítið, opið hagkerfi með sjálfstæða mynt sem er viðkvæmt fyrir ytri áföllum er erfitt að ofmeta hversu mikil grundvallarbreyting felst í þeim viðsnúningi sem hefur orðið á erlendri stöðu þjóðarbúsins á undanförnum árum.
Fyrir lítið, opið hagkerfi með sjálfstæða mynt sem er viðkvæmt fyrir ytri áföllum er erfitt að ofmeta hversu mikil grundvallarbreyting felst í þeim viðsnúningi sem hefur orðið á erlendri stöðu þjóðarbúsins á undanförnum árum. Vilhelm Gunnarsson

Aðeins fáein Evrópuríki geta státað sig af því að vera með sterkari erlenda stöðu í samanburði við Ísland en hrein eignastaða þjóðarbúsins í hlutfalli við landsframleiðslu hefur núna haldist yfir 40 prósent frá ársbyrjun 2024. Áratugur er liðin síðan Ísland náði þeim áfanga að vera hreinn útflytjandi fjármagns og hefur það meðal annars átt ríkan þátt í meiri stöðugleika íslensku krónunnar.


Tengdar fréttir

Erum nánast háð því að líf­eyris­sjóðirnir fari út með um hundrað milljarða á ári

Þegar það fer að róast um hjá ferðaþjónustunni og lífeyrissjóðirnir fara á nýjan leik að bæta í gjaldeyriskaupin mun raungengi krónunnar, sem eru sögulega hátt um þessar mundir, án vafa leiðréttast en spurningin er hins vegar aðeins hversu mikið, að sögn sérfræðings á gjaldeyrismarkaði. Framan af ári hafa lífeyrissjóðirnir keypt minna af gjaldeyri en á tímum faraldursins og mögulega er gjaldeyrisöflun þjóðarbúsins það sterk að við erum háð því að sjóðirnir fari út með hátt í hundrað milljarða á ári eigi koma í veg fyrir „ósjálfbært“ raungengi.

Ís­land eigi enn inni „tölu­vert mikið“ af hækkunum á láns­hæfis­mati

Nýleg hækkun á lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins hjá S&P ætti að hafa mikil jákvæð áhrif í för með sér fyrir þjóðarbúið, einkum fjármálakerfið, að sögn seðlabankastjóra sem telur Ísland eiga skilið enn meiri hækkun á lánshæfismatinu. Matsfyrirtækið hefur fram til þessa greint aukna hagræna áhættu hjá bönkunum sem hefur haft áhrif á áætlanir um mögulegt umfram eigið fé þeirra.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×