Sundlaugar borgarinnar verði bættar fyrir ungbarnafjölskyldur Atli Ísleifsson skrifar 30. september 2025 07:36 Laugardalslaug er ein af átta sundlaugum Reykjavíkurborgar. Vísir/Vilhelm Menningar- og íþróttaráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að skipa sérstakan spretthóp til að móta tillögur hvernig megi bæta aðstöðu, búnað og umhverfi fyrir ung börn og fjölskyldur þeirra í sundlaugum borgarinnar.
Þetta var ákveðið á fundi ráðsins síðastliðinn föstudag. Forstöðumenn sundlauga munu skipa spretthópinn sem taki til starfa þegar til starfa og á að skila endanlegum niðurstöðum fyrir 1. desember næstkomandi. Í greinargerð í samstarfssáttmála meirihlutaflokkanna í borgarstjórn er að finna ákvæði um að skoða bætta aðstöðu ungra barna og fjölskyldna þeirra í sundlaugum borgarinnar. „Sundlaugar borgarinnar eru átta talsins: Laugardalslaug, Vesturbæjarlaug, Grafarvogslaug, Breiðholtslaug, Klébergslaug, Árbæjarlaug, Sundhöllin og Dalslaug. Þær hafa allar að geyma sérstaka aðstöðu fyrir börn og fjölskyldur þeirra en mikilvægt er að rýna hvaða tækifæri eru til úrbóta í þeim efnum, varðandi m.a. aðbúnað, leiktæki, þjónustustig og umhverfi,“ segir í tillögunni. Fram kemur að þjónustustefna Reykjavíkurborgar verði leiðarljósið í vinnunni og að stuðst verði við aðferðafræði þjónustuhönnunar og samráð haft við ungbarnafjölskyldur eftir föngum. „Nú þegar er til mikið af umbótahugmyndum og í forsögn að endurbótum á útisvæði Laugardalslaugar var víðtækt samráð haft við mismunandi hópa gesta sem m.a. lúta að bættri aðstöðu ungra barna og fjölskyldna þeirra sem nýta má í þessari vinnu,“ segir í tillögunni.
Sundlaugar og baðlón Reykjavík Borgarstjórn Börn og uppeldi Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Innlent Fleiri fréttir Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sjá meira