Bara „random“ að rassskella stjúpdóttur sína og vinkonu hennar Agnar Már Másson skrifar 16. október 2025 13:36 Spurður út í rassskellingarnar sakargiftir fyrir Landsrétti sagði hann að háttsemin hefði verið „random“. Vísir/Vilhelm Landsréttur staðfesti í gær sakfellingu yfir manni sem braut kynferðislega á stjúpdóttur sinni. Dómurinn lækkaði þó fangelsisdóminn úr sjö mánuðum í fjóra mánuði, bundna skilorði í tvö ár, með tilliti til þess að málsmeðferðin hafði dregist verulega á langinn.
Karlmaðurinn hafði hlotið sjö mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Suðurlands vegna kynferðisbrota gegn stjúpdóttur sinni þegar hún var tólf til fjórtán ára gömul. Í málinu hafði honum verið gefið að sök að hafa á árunum 2018 til 2021 ítrekað slegið stúlkuna í rassinn og í eitt skipti nuddað beran rass hennar, læri og innanverð læri. Stúlkan var þá 12 til 14 ára gömul. Hann neitaði sök og hélt því fram að um hefði verið að ræða leik og djók í samskiptum þeirra. Ríkissaksóknari skaut málinu til Landsréttar þar sem ákæruvaldið krafðist þyngri dóms en maðurinn krafðist sýknu. Landsréttur leggur í niðurstöðu sinni sérstaka áherslu á að framburður frá vinkonu stjúpdótturinnar og móður hafi verið trúverðugur. Hafi nuddað hana að hennar beiðni Fyrir héraðsdómi viðurkenndi hann að hafa nuddað stúlkuna en sagði það hafa verið að hennar beiðni. Þegar hann nuddaði hana hafi vinkona stjúpdótturinnar verið viðstödd allan tímann og móðir hennar verið í dyragættinni og séð hvað væri að fara fram. Engar athugasemdir hafi komið fram þá. Hann sagðist ekki hafa nuddað beran rass hennar né innanverð læri. Hann hefði lært nudd og væri vel að sér í líffærafræði. Hann hafi veitt nuddið af þekkingu en ekki til að brjóta á stúlkunni. Í Landsrétti neitaði maðurinn að hafa nuddað svokallaðan maximus-vöðva stúlkunnar þrátt fyrir að hafa fyrir héraðsdómi sagst hafa nuddað þann vöðva. Héraðsdómur hafði bent á að umræddur vöðvi væri stærsti rassvöðvinn og því þótti dómnum vera innbyrðis ósamræmi í framburði mannsins sem bæði sagðist hafa nuddað vöðvann en ekki hafa nuddað rass hennar. „Random“ rasskelling eða „dangl“? Fyrir héraðsdómi viðurkenndi maðurinn að hann hefði „danglað“ í rass stjúpdóttur sinnar og einnig vinkonu hennar en sagði það vera grín. Spurður út í rassskellingarnar sakargiftir fyrir Landsrétti sagði hann að háttsemin hefði verið „random“. Maðurinn kvaðst ekki hafa haft ásetning til að brjóta á brotaþola og að hann hefði hætt háttseminni tímabundið eftir að móðir brotaþola bað hann um það. Fyrir dómi sagði stúlkan að sér hafi alltaf þótt þetta óþægilegt, sérstaklega í eitt skipti þegar hann hafi sagt: „Æj nei djók, þú gætir fílað þetta.“ Hún hafi ekki þorað að kvarta undan þessu fyrr en maðurinn hafi líka gert þetta við vinkonu hennar. Vinkonan benti á fyrir dómi að maðurinn hefði greinilega ekki verið að slá „út í loftið“ og höndin hafi ekki endað óvart á rassi þeirra. Sagði manninn gægjast inn í bað gegnum gat í veggnum Vinkonan var sérstaklega spurð út í fund sem hún hefði átt með stjúpdótturinni og móður hennar í kjölfar þess að hin síðarnefnda hafði skýrt dóttur sinni frá gati á vegg í þvottahúsi, sem móðirin taldi að ákærði hefði notað til að gægjast inn í baðherbergið þegar brotaþoli var í sturtu. Við sama tækifæri hefði móðir brotaþola greint vitninu frá gatinu og jafnframt að sú uppgötvun hefði leitt til skilnaðar hennar og ákærða. Landsréttur taldi að háttsemi mannsins væri kynferðislegs eðlis og að sönnun væri komin fram sem ekki yrði véfengd með skynsamlegum rökum. Því var hann sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni samkvæmt 2. mgr. 202. gr. Dómurinn tekur sérstaklega fram að verulegur dráttur hafi orðið á málsmeðferðinni, en að ákærða verði ekki um það kennt. Þessi dráttur hafði þó bein áhrif á ákvörðun um refsingu þar sem fangelsisdóminum var frestað og skilorðsbundinn, m.a. vegna þess hve langur tími var liðinn frá brotinu.
Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Dómsmál Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira