Rósa Guðbjarts hætt í bæjarstjórn Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 5. nóvember 2025 21:12 Rósa Guðbjartsdóttir er þingkona Sjálfstæðisflokksins og var oddviti flokksins í Hafnarfirði. Vísir/Anton Brink Rósa Guðbjartsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur setið sinn síðasta bæjarstjórnarfund í Hafnarfirði. Þetta tilkynnti hún í lok bæjarstjórnarfundar í dag.
Rósa var kjörin inn á þing í nóvember sem fjórði þingmaður Sjálfstæðisflokksins í suðvesturkjördæmi. Þá var hún enn bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar en Valdimar Víðisson tók við af henni um áramótin. Þá varð Rósa að almennum bæjarfulltrúa og hefur verið síðan þá. Þegar fréttastofa ræddi við hana í mars sagði hún ekki útilokað að hún myndi sitja í bæjarstjórn út kjörtímabilið. Rósa hefur verið bæjarfulltrúi í Hafnarfirði í nítján ár, frá árinu 2006. Hún var bæjarstjóri frá 2018 og til síðustu áramóta. „Þetta hefur verið ánægjulegur tími. Ég þakka þann mikla árangur, sem við höfum náð í að gera góðan bæ betri, einstaklega samhentum hópi okkar sjálfstæðismanna,“ skrifar Rósa í færslu á samfélagsmiðlinum Facebook. „Sjálf hef ég sett hjarta mitt og sál í þetta starf og ég mun áfram brenna fyrir bæinn minn. Við þessi kaflaskil vil ég þakka öllu samstarfsfólki, starfsmönnum bæjarins og kjörnum fulltrúum, fyrir einkar skemmtilegt og gjöfult samstarf í gegnum árin og sérstaklega Hafnfirðingum öllum sem ég hef átt í mjög ánægjulegu sambandi við.“
Hafnarfjörður Sjálfstæðisflokkurinn Alþingi Sveitarstjórnarmál Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira