Moskító mætt á Suðurland Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 13. nóvember 2025 09:16 Moskítófluga. Björn Hjaltason Moskítóflugur hafa fundist í hesthúsi á Suðurlandi. Frá þessu greinir Björn Hjaltason sem var fyrsti maðurinn til að finna moskítóflugur hér á landi í Kjós í Hvalfirði.
Björn greinir frá þessu inni á Facebook hópnum Skordýr á Íslandi. Þar tekur hann fram að frá því að moskítóflugan hafi fundist á Vesturlandi hafi moskítómanía gripið um sig meðal þjóðarinnar. Fólk hafi séð kvikindið í hverju horni og myndir hrúgist inn af allskonar skordýrum sem fólk telji að séu moskítóflugur, jafnvel fiðrildum. „EN - á mánudagskvöld síðastliðið barst mér mynd austan úr sveitum af flugu sem vissulega var moskító. Við Matti skondruðumst austur í morgunsárið daginn eftir til að kanna málið og ekki var um að villast. Í hesthúsi á bæ einum tóku á móti okkur nokkrar moskítóflugur og það sem meira er, að ekki var um sömu tegund að ræða og þá sem ég hef verið að finna undanfarið. Tegundin er af ættkvíslinni Culex en frekari greining liggur ekki fyrir.“ Segir hann rétt fyrir bændur og búalið á Suðurlandi að hafa augun hjá sér á næstunni, verði vart við óvanalegan flugnagang í gripahúsum. Flugan uppgötvaðist fyrst í lok október. Fréttastofa ræddi við prófessor emeritus um málið sem sagðist telja það taka fluguna um tíu til fimmtíu ár að koma sér fyrir um land allt. Fréttastofa fór yfir málið í lok október og hvernig flugan sé líkleg að dreifa sér um landshluta með tilliti til dreifingar lúsmýs.
Skordýr Tengdar fréttir Tegundin sé líklega komin til að vera Moskítóflugan sem fannst í Kjós um helgina er af tegund sem er algeng og útbreidd um alla Evrópu og þrífst vel í köldu loftslagi. Líklegt er að tegundin sé komin til að vera en Náttúrufræðistofnun fylgist með. 20. október 2025 12:40 Bítur eins og lúsmý en er stærra og stingur dýpra Moskítófluga sem fannst um helgina í Kjós er af tegund sem er sérlega lunkin við að halda sér á lífi á veturna. Sérfræðingur segir tímaspursmál hvenær hún verði búin að dreifa sér um land allt. Koma flugunnar veldur heilbrigðisyfirvöldum ekki hugarangri. 20. október 2025 23:15 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira
Tegundin sé líklega komin til að vera Moskítóflugan sem fannst í Kjós um helgina er af tegund sem er algeng og útbreidd um alla Evrópu og þrífst vel í köldu loftslagi. Líklegt er að tegundin sé komin til að vera en Náttúrufræðistofnun fylgist með. 20. október 2025 12:40
Bítur eins og lúsmý en er stærra og stingur dýpra Moskítófluga sem fannst um helgina í Kjós er af tegund sem er sérlega lunkin við að halda sér á lífi á veturna. Sérfræðingur segir tímaspursmál hvenær hún verði búin að dreifa sér um land allt. Koma flugunnar veldur heilbrigðisyfirvöldum ekki hugarangri. 20. október 2025 23:15