Afhjúpi hættuleg viðhorf til íslenskra fjölmiðla Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 25. nóvember 2025 12:32 Guðmundur Ingi Kristinsson í viðtali hjá Andrési Magnússyni blaðamanni á Morgunblaðinu í forsætisráðuneytinu í morgun. Ágúst Ólafur Ágústsson, aðstoðarmaður Guðmundar Inga, fylgist vel með. Vísir/Vilhelm Yfirlýsing barna- og menntamálaráðherra þar sem hann sakar Morgunblaðið um ófagleg vinnubrögð er alvarleg aðför að fjölmiðlafrelsi á Íslandi. Þetta segir formaður Blaðamannafélags Íslands sem segir hana bera með sér mikla vanþekkingu og afhjúpa hættuleg viðhorf.
Morgunblaðið var á dögunum sakað um ófagleg vinnubrögð og fyrir að veita vísvitandi rangar og villandi upplýsingar, í tilkynningu barna- og menntamálaráðuneytisins er vitnað til samskipta Guðmundar Inga Kristinssonar ráðherra. Var málið sagt mjög einkennandi fyrir vinnubrögð blaðsins. Morgunblaðið vísaði ásökunum þessum til föðurhúsanna, blaðinu væri ritstýrt með hagsmuni lesenda í fyrirrúmi, ekki af ráðherrum þeim til þægðar. Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélagsins segist líta málið grafalvarlegum augum. „Það er bara mjög alvarlegt, alvarlegt að valdamenn séu eins og þarna að grafa undan trausti á fjölmiðla, trausti til blaðamanna og þar af leiðandi veikja þessar stoðir sem eiga að vera einmitt að veita þeim aðhald, veita almenningi upplýsingar.“ Ráðherra sé í yfirlýsingu sinni að nota orð sem hann annað hvort skilji ekki eða þá til þess að refsa fjölmiðli fyrir að flytja ekki fréttir með þeim hætti sem honum eru þóknanlegar. „Ég veit ekki hvort er verra en ég vona innilega að þetta sé vanþekking á hlutverki fjölmiðla og hans eigin hlutverki sem ráðherra.“ Sigríður Dögg gagnrýnir yfirlýsingu ráðherra. Það sé sömuleiðis fyrir neðan allar hellur að ráðherra kosti auglýsingar með árásir sínar á fjölmiðil á samfélagsmiðlum, og að hann geri athugasemdir við fyrri umfjallanir Morgunblaðsins sem ekki hafi verið skrifaðar eftir hans þótta. „Mér finnst þetta bara afhjúpa hættuleg viðhorf til íslenskra fjölmiðla og mér finnst kominn tími til þess að samfélagið og almenningur gagnrýni það hvaða viðhorf þarna koma fram gagnvart fjölmiðlum og blaðamönnum.“
Fjölmiðlar Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Fleiri fréttir Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Sjá meira