Saka borgarstjóra um að funda fjarri til að forðast íbúa Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 25. nóvember 2025 21:39 Íbúasamtök Grafarvogs segja Heiðu Björg vera forðast þau. Samsett Íbúasamtök Grafarvogs saka borgarstjóra um að halda hverfafund þeirra í öðru hverfi til að meðvitað forðast beint samtal við Grafarvogsbúa. Borgarstjóri heldur opið kaffispjall á Kjalarnesi í í kvöld, en hverfadagar borgarstjóra í Grafarvogi og Kjalarnesi hófust í gær.
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri heimsækir nú hverfi borgarinnar á svokölluðum Hverfadögum. Meðal annars heimsækir hún skóla og stofnanir auk þess sem hún heldur opna viðburði þar sem hægt er að ræða málin. Samkvæmt heimasíðu Reykjavíkurborgar hófust Hverfadagar í Grafarvogi í gær og standa þeir til 28. nóvember. Þá er einnig haldinn Hverfadagur á Kjalarnesi í dag, 25. nóvember. Í tilefni þess var boðað til kaffispjalls í Klébergsskóla á Kjalarnesi, en staðsetningin féll ekki vel í kramið hjá Grafarvogsbúum. „Kjalarnes og Grafarvogur eru tvö aðskilin hverfi sem deila hvorki innviðum, samgöngum né samfélagslegri nálægð. Að halda íbúafund fyrir Grafarvogsbúa á Kjalarnesi er í reynd útilokandi fyrir stóran hluta íbúa, sérstaklega barnafólk, eldra fólk og þá sem treysta á almenningssamgöngur,“ segir í yfirlýsingu íbúasamtaka Grafarvogs. Þar segir að íbúarnir hafi ekki verið hræddir við að láta rödd sína heyrast, til að mynda í skipulagsmálum hverfisins. Sumarið 2024 mótmæltu íbúar Grafarvogs harðlega áformum borgarinnar um nýtingu lóða í helstu úthverfum borgarinnar og kölluðu þau „ofurþéttingu“. „Það er því óhjákvæmilegt að spyrja sig hvort þessi tilhögun að halda fund fjarri Grafarvogi og án nægilegs aðdraganda sé meðvitað til að forðast beint samtal við íbúa hverfisins.“ Auglýstu vitlausan dag og létu vita samdægurs Í yfirlýsingu frá íbúasamtökunum er einnig bent á vankanta við boðun kaffispjallsins. Viðburðurinn hafi fyrst verið auglýstur í Morgunblaðinu en þar stóð að fundurinn yrði 26. nóvember, en hann var í raun í dag. Rétt tímasetning hafi verið auglýst með Facebook-viðburði en sá viðburður birtist samdægurs. „Ef markmiðið er að borgarbúar geti átt í raunverulegu samtali við kjörna fulltrúa, þá verður að tryggja að það samtal sé aðgengilegt og tímanlega boðað. Þessi framkvæmd ber því miður ekki merki um slíka einlægni.“ Vegna þessa krefjast íbúar Grafarvogs þess að haldinn verði annar fundur í hverfi þeirra, með nægum fyrirvara. „Samtal við borgarbúa má ekki byggja á handahófi eða útilokun heldur virðingu og aðgengi.“ Uppfært 26. nóvember kl 8:00: Í tilkynningu Reykjavíkurborg segir að borgin vilji gjarnan koma því á framfæri að kaffispjall borgarstjóra í Klébergsskóla hafi verið auglýst sem hluti af hverfaheimsókn til Kjalarness í gær, þriðjudaginn 25. nóvember. „Þessi viðburður var aldrei auglýstur sem íbúafundur fyrir Grafarvog og Kjalarnes þó vissulega sé borgarstjóri að heimsækja bæði hverfin þessa viku og viðburðurinn öllum opinn. Í dag, miðvikudaginn 26. nóvember mun borgarstjóri heimsækja fjölmarga staði í Grafarvogi og verður hún meðal annars á opnum félagsfundi Korpúlfa í Borgum klukkan 14. Viðburðir á Hverfadögum Heiðu Bjargar borgarstjóra eru með ólíku sniði í hverju hverfi en hún tekur vel í allar óskir um fundi og segir sjálfssagt að skipuleggja opinn fund með Grafarvogsbúum og mun hann að sjálfssögðu verða auglýstur með góðum fyrirvara,“ segir í tilkynningunni. Fréttin hefur verið uppfærð með viðbrögðum frá Reykjavíkurborg.
Borgarstjórn Reykjavík Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira