Ekki dómarans eins að meta hvort umskurn væri hættuleg Árni Sæberg skrifar 16. desember 2025 16:54 Landsréttur kvað upp heimvísunarúrskurð í málinu í dag. Vísir/Egill Landsréttur hefur ógilt sýknudóm konu, sem ákærð var fyrir að hafa fengið erlendan sérfræðing til að skera forhúð af getnaðarlim sautján mánaða sonar hennar. Landsréttur taldið að dómari við Héraðsdóm Norðurlands eystra hefði ekki getað lagt mat á það hvort umskurnin hefði ógnað lífi eða velferð drengsins á aðkomu sérfróðs meðdómsmanns. Málið fer því aftur til meðferðar í héraðsdómi.
Í febrúar síðastliðnum var greint frá því að móðirin hefði verið sýknuð af ákæru fyrir stórfellda líkamsárás og brot í nánu sambandi með því að hafa látið umskera sautján mánaða gamlan son sinn. Var á spítala í tvo daga Í dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra sagði að hún hefði verið ákærð fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, brot í nánu sambandi og brot gegn barnaverndarlögum með því að hafa þriðjudaginn 27. október 2022, á þáverandi heimili sínu á Akureyri, fengið óþekkta konu til að skera forhúð af getnaðarlim ólögráða sonar hennar. Samkvæmt ákæru hefðu afleiðingar háttsemi konunnar orðið þær að leitað var með drenginn á sjúkrahúsið á Akureyri sama dag. Hann hefði dvalist þar í tvo daga eftir að hafa þurft að gangast undir svæfingu og skurðaðgerð. Með þessu hefði konan ógnað lífi og velferð drengsins á sérstaklega sársaukafullan og meiðandi hátt. Ekki sannað að konan hefði ógnað heilsu drengsins Í dóminum sagði að í ákæru væri látið við það sitja að tilgreina að farið hefði verið með drenginn á sjúkrahús, án þess að greina nánar frá heilsufarsástandi hans á þeirri stundu þegar ákveðið var að leita á bráðadeild SAk. Til viðbótar væri tilgreint í ákæru um afleiðingar að brotaþoli hefði gengist undir svæfingu og skurðaðgerð og dvalist á sjúkrahúsinu í tvo daga og auk þess án frekari skýringa að háttsemi konunnar hefði ógnað lífi og velferð drengsins á sérstaklega sársaukafullan og meiðandi hátt. Ekki yrði séð af gögnum málsins að brýn heilsufarsleg nauðsyn hefði verið ástæða þess að farið var með drenginn á bráðadeild SAk þennan dag. Af vitnisburði tveggja lækna mætti ráða að umskurn drengsins hefði að þeirra mati ekki verið lokið þegar þeir skoðuðu hann, en hann hefði ekki verið í lífshættu. „Þeir töldu hins vegar nauðsynlegt að sauma saman hringsár á forhúð meðal annars til að stuðla að réttum gróanda og til að hindra myndun örvefja.“ „Dómurinn telur ekki sannað að ákærða hafi ógnað lífi og velferð brotaþola með háttsemi sinni, með því að heimila umskurð á brotaþola, enda eru slíkar aðgerðir tíðkaðar víða um lönd án þess að læknisfræðileg þörf liggi fyrir. Ákærða kom ekkert að framkvæmd umskurðarins, enda fékk hún til verksins konu, sérfræðing, sem hún treysti til verksins,“ sagði í dóminum. Með vísan til þessa var konan sýknuð af öllum kröfum ákæruvaldsins. Skorinn án deyfingar við slæmar aðstæður Ríkissaksóknari skaut málinu til Landsréttar, sem kvað upp úrskurð í því í dag. Í úrskurðinum segir að ákæruvaldið hefði meðal annars byggt á því að sú aðferð sem beitt var við umskurnina og þær aðstæður á heimili konunnar sem hún var framkvæmd við hefðu verið til þess fallnar að stofna lífi og velferð brotaþola í hættu. „Vísar ákæruvaldið til þess að brotaþoli hafi verið skorinn án almennilegrar deyfingar og að hvorki verði séð að umskurðurinn hafi verið framkvæmdur af vottuðum heilbrigðisstarfsmanni né með viðurkenndum læknisbúnaði.“ Í héraði hefðu gefið skýrslu þrír læknar. Þeir hefðu meðal annars borið um aðstæður brotaþola við skoðun á Sjúkrahúsinu á Akureyri, aðgerðina sem þar var framkvæmd og áhættu við framkvæmd umskurnar í heimahúsi ásamt því að þeir hefðu verið beðnir um að lýsa áliti sínu á umskurn drengsins og hversu mikið inngrip í líf hans hún hefði verið. Hefði þurft að kalla til meðdómara „Eins og framsetningu ákæru, málatilbúnaði og sönnunarfærslu ákæruvalds háttar var brýnt að héraðsdómari kveddi til sérfróðan meðdómsmann til að leggja mat á og spyrja þá sérfróðu menn sem nauðsyn bar til að kæmu fyrir dóm, samanber [lög um meðferð sakamála], enda verður ekki talið að héraðsdómari hafi á grundvelli almennrar þekkingar og menntunar eða lagaþekkingar getað lagt mat á hvort lífi og velferð brotaþola var ógnað með háttsemi ákærðu,“ segir í úrskurðinum. Þar sem það hafi ekki verið gert sé óhjákvæmilegt að ómerkja hinn áfrýjaða dóm og vísa málinu heim í hérað til aðalmeðferðar og dómsálagningar að nýju.
Dómsmál Ofbeldi gegn börnum Akureyri Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Innlent 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Innlent Eldur í Árbænum Innlent Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Erlent Fleiri fréttir Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Malbika á Reykjanesbraut í kvöld 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Sjá meira