Íþróttaeldhugi ársins endurvakti ungmennafélag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. janúar 2026 23:39 Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, óskar hér Bjarna Malmquist Jónssyni til hamingju með verðlaunin. isi.is Bjarni Malmquist Jónsson, sem starfað hefur fyrir Ungmennafélagið Vísi og Ungmennasambandið Úlfljót, var í kvöld útnefndur Íþróttaeldhugi ársins 2025.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, í samvinnu við Lottó, hefur undanfarin fjögur ár staðið fyrir þeirri nýbreytni, á hófi Íþróttamanns ársins, að útnefna við sama tækifæri Íþróttaeldhuga ársins úr röðum sjálfboðaliða í íþróttahreyfingunni. Með þessari útnefningu vill ÍSÍ vekja athygli á starfi sjálfboðaliðans og koma á framfæri þakklæti fyrir framlag sjálfboðaliða um land allt en sjálfboðaliðar gegna geysimikilvægu hlutverki hjá öllum íþróttafélögum landsins og gera það að verkum að starfið í hreyfingunni er eins öflugt og raun ber vitni. Verðlaunagripurinn, sem Íþróttaeldhugi ársins hlýtur, er hannaður sérstaklega af Sigurði Inga Bjarnasyni gullsmið, fyrir þetta tilefni. Þrjú voru valin Þrír einstaklingar voru valdir úr fjölda tilnefninga sem bárust ÍSÍ og voru þau heiðruð í kvöld fyrir þeirra ómetanlegu störf en ásamt Bjarna voru einnig heiðruð: Árni Þór Grétarsson (handknattleikur), fyrir störf hans fyrir Umf. Selfoss og Hugrún Hjálmarsdóttir (knattspyrna, skíði og blak) fyrir störf hennar fyrir Íþróttafélagið Hött, samstarfsvettvanginn FHL og UÍA. Öll ofangreind hafa unnið mikið og óeigingjarnt starf í þágu íþrótta. Í umsögnum um Bjarna í innsendum tilnefningum kom m.a. fram: Sýndi einstakan drifkraft og seiglu „Bjarni Malmquist Jónsson sýndi einstakan drifkraft og seiglu við að endurvekja Ungmennafélagið Vísi í Suðursveit og að virkja samtakamátt fólksins í sveitinni við framkvæmdir á fjölnota íþróttavelli við Hrollaugsstaði. Hann hefur verið leiðandi í að skapa tækifæri fyrir samfélagið til að láta hugmyndir rætast og hefur smitað út frá sér með jákvæðni og lausnamiðaðri hugsun. Verkefnið varð ekki aðeins byggingarframkvæmd heldur samfélagslegt afl þar sem nær hver einasti íbúi lagði sitt af mörkum. Íþróttavöllurinn við félagsheimilið Hrollaugsstaði hefur orðið tákn um sjálfstæði, seiglu og trú á framtíðina í einni af fjarlægari sveitum landsins. Áhrif Bjarna munu vara um ókomna tíð Áhrif Bjarna munu vara um ókomna tíð og styrkja sveitarfélagið, ungmennafélagið og samheldni í Suðursveit um ókomin ár. Bjarni hefur einnig unnið mikið starf hjá Borðtennisdeild Ungmennafélagsins Vísis, komið á laggirnar vikulegum æfingum í borðtennis fyrir allan aldur og árlegum æfingabúðum fyrir hreyfihamlaða einstaklinga. Hann hefur verið drífandi kraftur fyrir fólkið í Suðursveit og er formaður USÚ. Með eldmóði og hugrekki hefur Bjarni kveikt neista sem hefur breiðst út um alla Suðursveit. Bjarni er verðugur Íþróttaeldhugi ársins 2025.“
Íþróttamaður ársins ÍSÍ Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn „Þeir litu út fyrir að vera ekki í formi“ Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti DocZone snýr aftur Enski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Fleiri fréttir Norris náði ráspólnum aftur Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar „Þeir litu út fyrir að vera ekki í formi“ Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Russell vann sprettinn í þriðja sinn Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Messi sektaður fyrir að slá andstæðing „Auðvitað var auka hjartsláttur“ ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur Sinner missir af Opna bandaríska United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Strákarnir réðu ekki við Finnana Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Ísland tapaði fyrir Portúgal Sjá meira