Tvennu vísað úr landi Agnar Már Másson skrifar 7. janúar 2026 16:10 Lögreglan greinir frá þessu. Mynd úr safni. Vísir/Vilhelm Erlendum karli og konu hefur verið vísað úr landi og bönnuð endurkoma að ósk Útlendingastofnunar með vísan til laga um allsherjarreglu, almannaöryggi eða almannaheilbrigði. Þau voru góðkunningjar lögreglunnar, segir í tilkynningu.
Í fréttatilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sem ber yfisrskriftina „Þjófar sendir úr landi“, segir að tveimur erlendum ríkisborgurum, karli og konu, hafi verið vísað brott frá Íslandi og bönnuð endurkoma í fimm ár. Þetta sé gert samkvæmt ákvörðun Útlendingastofnunar á grundvelli 1., sbr. 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 en lögin kveða á um að heimilt sé að vísa EES-, EFTA-borgara eða aðstandanda hans úr landi ef það telst nauðsynlegt með skírskotun til allsherjarreglu, almannaöryggis eða almannaheilbrigðis. Fólkið sem umræðir er á fertugs- og fimmtugsaldri og hafði dvalið á Íslandi um tveggja ára skeið og ítrekað komið við sögu lögreglu, segir í tilkynningunni. Það hafi verið sakfellt í héraðsdómi í haust og í byrjun þessa árs fyrir fjölda brota gegn almennum hegningarlögum. Lögreglan greinir ekki frá þjóðerni tvímenninganna. Brottvísun samkvæmt þessari lagagrein er leyfileg ef framferði hinna brottvísuðu felur í sér „raunverulega, yfirvofandi og nægilega alvarlega ógn gagnvart grundvallarhagsmunum samfélagsins.“
Innflytjendamál Lögreglumál Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ Innlent Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Erlent Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Erlent Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna Innlent Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Innlent Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Innlent Fleiri fréttir Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið Sjá meira