Ungt barn með mislinga á Landspítalanum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 8. janúar 2026 13:20 Barnaspítali Hringsins. Vísir/Vilhelm Ungt barn á Landspítalanum greindist með mislinga en barnið kom heim erlendis frá síðastliðinn mánudag. Barnið var á bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins daginn eftir og verður haft samband við alla sem hugsanlega voru útsettir fyrir smiti á spítalanum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landlæknisembættinu. Þar segir að sérstaklega hafi verið haft samband við þau flugfélög sem fluttu barnið þann 5. janúar og verða farþegar upplýstir um smithættu. „Mislingar eru bráðsmitandi skæður veirusjúkdómur sem smitar frá öndunarvegi. Einkenni geta komið fram hjá smituðum 1−3 vikum eftir smit. Þau sem hafa verið bólusett fyrir mislingum eða fengið mislinga áður smitast mjög ólíklega en ef það gerist eru einkenni oftast væg. Óbólusettir eru hins vegar í áhættu fyrir smiti og veikindum.“ Eru þeir sem haft verður samband við vegna hugsanlegrar útsetningar og fá einkenni líkt og hita, kvefeinkenni, augnroða og/eða útbrot á næstu tveimur til þremur vikum, sérstaklega ef þeir hafa ekki verið bólusettir fyrir mislingum eða ekki fengið mislinga, eindregið hvattir til að hafa samband við lækni eða heilsugæslu símleiðis (1700 á höfuðborgarsvæði) eða gegnum netspjall Heilsuveru. „Ef þú telur þig vera óbólusettan og vilt láta bólusetja þig við mislingum, hafðu samband við lækni/heilsugæslu símleiðis (1700 á höfuðborgarsvæði) eða gegnum netspjall Heilsuveru. Athugið að bólusetning vegna útsetningar þarf að eiga sér stað ekki seinna en 8. janúar tengt fluginu og 9. janúar tengt Barnaspítala.“ Frekari upplýsingar um mislinga má finna á vef embættis landlæknis.
Landspítalinn Heilbrigðismál Mislingar Tengdar fréttir Verra að fá sýkinguna en bólusetninguna Sóttvarnalæknir, Guðrún Aspelund, segir börn í miklu meiri hættu ef þau eru ekki bólusett við mislingum. Mislingar eru veirusjúkdómur sem var algengur á Íslandi áður en hefur ekki verið það lengi vegna bólusetninga. 26. janúar 2024 10:25 Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Alls höfðu um 1.300 verið greindir með mislinga í Bandaríkjunum síðasta föstudag og hafa tilfellin ekki verið svo mörg í 33 ár. Árið 2000 var því lýst yfir að búið væri að útrýma sjúkdómnum í Bandaríkjunum. Auðvelt er að koma í veg fyrir að fólk fái sjúkdóminn með bóluefni. 8. júlí 2025 08:04 Hafa áhyggjur af gífurlegri fjölgun mislingasmitaðra í Evrópu Vitað er til þess að rúmlega þrjátíu þúsund manns smituðust af mislingum í Evrópu í fyrra. Árið 2022 smituðust 941 og samsvarar aukningin því rúmlega þrjátíuföldun. Þetta kom fram á fundi ráðstefnu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar í Evrópu í dag. 23. janúar 2024 16:06 Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent „Frakkland má ekki vera fyrirmynd í þessum efnum“ Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fleiri fréttir „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Sjá meira
Verra að fá sýkinguna en bólusetninguna Sóttvarnalæknir, Guðrún Aspelund, segir börn í miklu meiri hættu ef þau eru ekki bólusett við mislingum. Mislingar eru veirusjúkdómur sem var algengur á Íslandi áður en hefur ekki verið það lengi vegna bólusetninga. 26. janúar 2024 10:25
Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Alls höfðu um 1.300 verið greindir með mislinga í Bandaríkjunum síðasta föstudag og hafa tilfellin ekki verið svo mörg í 33 ár. Árið 2000 var því lýst yfir að búið væri að útrýma sjúkdómnum í Bandaríkjunum. Auðvelt er að koma í veg fyrir að fólk fái sjúkdóminn með bóluefni. 8. júlí 2025 08:04
Hafa áhyggjur af gífurlegri fjölgun mislingasmitaðra í Evrópu Vitað er til þess að rúmlega þrjátíu þúsund manns smituðust af mislingum í Evrópu í fyrra. Árið 2022 smituðust 941 og samsvarar aukningin því rúmlega þrjátíuföldun. Þetta kom fram á fundi ráðstefnu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar í Evrópu í dag. 23. janúar 2024 16:06