Guðjón Valur fær Garðar til Gummersbach Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. janúar 2026 10:25 Garðar Ingi Sindrason hefur skorað 77 mörk og gefið 86 stoðsendingar fyrir FH í Olís-deildinni í vetur. vísir/anton FH-ingurinn ungi, Garðar Ingi Sindrason, gengur í raðir þýska úrvalsdeildarliðsins Gummersbach fyrir næsta tímabil.
Á heimasíðu sinni greinir Gummersbach frá því að hinn átján ára Garðar hafi skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Á síðasta tímabili spilaði Garðar með FH gegn Gummersbach í Evrópudeildinni og fékk þar forsmekkinn af því að spila á heimavelli þýska liðsins. „Gassi er enn gríðarlega ungur og einn af hæfileikaríkustu leikmönnum Íslands. En hann mun klárlega þurfa sinn tíma,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson, þjálfari Gummersbach, í fréttatilkynningu félagsins. „Við þurfum að byggja hann vel upp, því skrefið frá Íslandi til Þýskalands er ansi stórt en við höfum að sjálfsögðu miklar væntingar til hans til framtíðar og erum mjög ánægðir með þessi félagaskipti.“ Tveir Íslendingar leika með Gummersbach; landsliðsmennirnir Elliði Snær Viðarsson og Teitur Örn Einarsson. Í fréttinni á heimasíðu Gummersbach kemur fram að Aron Pálmarsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði, hafi aðstoðað við félagaskiptin og samningaviðræðurnar en hann er frændi Garðars. „Gummersbach er eitt af bestu félögum Þýskalands. Mér fannst mikill heiður þegar þeir höfðu samband við mig. Þeir hafa Guðjón Val Sigurðsson sem þjálfara, stefna hátt og eiga frábæra stuðningsmenn. Ég er mjög spenntur fyrir því að verða brátt hluti af þessu frábæra félagi,“ sagði Garðar um verðandi vistaskipti til Þýskalands. Guðjón Valur hefur stýrt Gummersbach frá 2020 og undir hans stjórn hefur liðið farið upp úr B-deildinni og í efri hluta úrvalsdeildarinnar.
Olís-deild karla FH Þýski handboltinn Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Sigurganga Hauka heldur áfram Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Sjá meira