Lífið

Sjóð­heit trend sem taka yfir á nýju ári

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Þau eru fjölbreytt og skemmtileg trendin fyrir árið.
Þau eru fjölbreytt og skemmtileg trendin fyrir árið. SAMSETT

Þær eru margvíslegar og síbreytilegar tískubylgjurnar sem koma í kjölfar nýrra árstíða og tímabila og sumir fussa hreinlega og sveia yfir einhverju sem gæti talist trend. Þó endurspegla trendin gjarnan tíðarandann og í sumum tilfellum því að tilheyra eða upplifa sameiningarkraft. 

Samkvæmt tískurisanum Vogue eru eftirfarandi trend að fara að tröllríða tískusenunni 2026. 

Doppur

Gömlu góðu doppurnar fóru að sækja í sig veðrið árið 2025 og virðist trendið einfaldlega rétt að byrja. 

Doppótt frá toppi til táar, hví ekki? 

Doppur eru komnar til að vera.

Taflmynstrað eða köflótt

Munstur gefa lífinu dýpt og lífga upp á annars hversdagslegar flíkur. Um að gera að blanda ólíkum mynstrum saman líka því reglur eru til þess að brjóta þær. 

Töff mynstur.Daniel Zuchnik/Getty Images

Mörg lög af flottum flíkum

Lagskipta lúkkið eða layering eins og það heitir á ensku er trend sem hentar einstaklega vel í íslensku veðurfari. 

Það jafnast fátt á við góð og mjúk efni sem halda á okkur hita. Silki, kasmír og ull, loð, leður, dúnn og hvað eina allt í eina sæng. 

Lög af fötum. Moritz Scholz/Getty Images

Nælur

Ef þið hafið tök á að kíkja í fataskápinn hjá ömmu þá er um að gera að grípa gæsina og fá að láni steinaðar og stórar nælur sem vekja athygli. 

Trendið vakti athygli á tískuvikunni í París á dögunum hjá tískuhúsinu Lacoste og hið svokallaða ömmu-core virðist ætla að taka pláss í ár. Ömmu-stællinn er líka bara alltaf svo skemmtilegur. 

Þykkbotna háhæla-strigaskór, já sæll

Kæru lesendur þetta trend kemur blaðamanni í opna skjöldu en fyrir um þrettán árum síðan spókaði blaðamaður sig um í þykkbotna hælastrigaskóm í New York og Los Angeles og leið eins og alvöru tískuskvísu. 

Nokkrum árum síðar var þó trendið yfirlýst hræðilega púkó og fullyrt að það kæmi aldrei aftur í tísku. Nema hvað, 2026 er ár endurkomu háhæla strigaskónna. Svona kemur tískan okkur á óvart. 

Smá sjokk að þetta trend sé komið aftur.Edward Berthelot/Getty Images

Súkkulaðibrúnn

Tískulitur ársins, svo elegant og smart. Súkkulaðibrúnar leðurbuxur, kósílegar súkkulaðibrúnar kasmírpeysur, súkkulaðibrúnn partýkjóll, súkkulaðibrún stígvél. 

Þetta eru flíkur sem maður sér ekki eftir í fataskápinn. 

Lágar mjaðmabuxur

Lágar buxur sem hanga á mjöðmunum og sýna mikið bert á milli.

Trend sem Britney Spears og Paris Hilton rokkuðu um aldamótin og er stöðugt að koma aftur, sumum til mikillar ánægju, öðrum til mikils hryllings. 

Unnur Borg tískuskvísa elskar lágar buxur og þrönga boli.Aðsend

Íþrótta-joggingbuxur

Útvíðar lausar Adidas buxur í fjölbreyttum litum við gelluskó og þrönga efriparta. Svo heitt akkúrat núna. 

Silkislæður

Alheimstrend sem Halla Tómasdóttir er löngu dottin á vagninn með. Meira af silkiklútum 2026 og svo má klæðast þeim eins og hverjum og einum sýnist. 

Silkiklútur sem pils eða bolur, belti eða hárband. Allt er leyfilegt. 

Skemmtilega stíliseruð silkislæða. TheStewartofNY

Krúttlegheit

Já, þið heyrðuð rétt. Dúlludúskatískan sem sækir mikinn innblástur til Suður-Kóreu og Tokyo heldur áfram að skína. 

Labubu er ekki að fara neitt og fleiri ofurdúllu tískufyrirbæri á borð við Monchhichi sækja í sig veðrið. Dúlló er inn. 

Monchhichi er svo dúlló.

Y3K

Enginn tvöþúsund-stíll heldur þrjúþúsund. Framtíðarlegt, flippað og speisað. Svo má syngja línu Fergie úr hinu æðislega lagi Boom Boom Pow: „I'm so 3008. You're so 2000-and late.“ 

Tískumerki á borð við Ottolinger og Coperni sem fást í Yeoman eru algjörlega með þessa tískustefnu á lás. 

Y3K er ekkert eðlilega töff. Victor Boyko/Getty Images

Ýktur maxímalískur stíll frá níunda áratugnum

Axlapúðar? Já takk. Ögrandi, stórt skart? Já takk. Risa jakkar? Selt! Hliðartagl? Hví ekki! 

Bella Hadid í maxímalískum eitís stíl á tískupallinum hjá Saint Laurent í París nú á dögunum. Antoine Flament/Getty Images)





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.