„Þessu hef ég verið háður býsna lengi“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 15. janúar 2026 13:01 Jakob Birgisson, uppistandari og aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, er hættur að nota nikótínpúða eftir marga ára neyslu. Jakob Birgisson, grínisti og aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, tók sinn síðasta nikótínpúða fyrir tveimur dögum og er hættur neyslu þeirra eftir að hafa verið háður þeim síðan í menntaskóla. Jakob tilkynnti ákvörðunina með sérstöku TikTok-myndbandi og fór síðan yfir bindindið í morgunútvarpi Rásar tvö í morgun. „
Jæja, ég var að horfa á Silfrið. Er það frásagnarvert? Nei, ég myndi ekki segja það en það sem er hins vegar frásagnarvert er að ég er núna að taka síðustu lummuna mína á ævinni,“ segir Jakob í TikTok-myndbandi sem hann birti fyrir tveimur dögum og titlar „Hrósið mér“. „Þessu hef ég verið háður býsna lengi. Þetta er algjört eitur og viðbjóður og ég er alltaf að komast betur og betur að því, eftir því sem ég eldist, hvað þetta fer illa með mig,“ segir hann og tekur upp síðasta púðann. @jakobbirgisson Hrósið mér ♬ original sound - Jakob Birgis „Ég er alltaf með heilsukvíða, ég skemmi í mér tannholdið, ég held oft að ég sé að fara að fá hjartáfall eða eitthvað. Ég er ungur maður en verð stundum móður við að ganga á milli húsa og ég hef nú gengið mikið í gegnum tíðina, geng mjög reglulega og mikið,“ segir hann jafnframt. „Ég fæ ekkert út úr þessu sem er gott vegna þess að ég er svo háður þessu að ég er alltaf með uppi í mér. Þannig að þetta er ánægjuleg stund að taka þá síðustu. Ég hlakka til framhaldsins og held að það verði létt að hætta þessu. Ég held að þetta sé meira og minna í huganum á manni, þetta er kannski einn dagur þar sem líkaminn er eitthvað erfiður. Maður fer bara í gufu og göngutúr og les góða bók,“ segir hann svo. Forfallinn fíkill eftir menntaskóla Jakob fór síðan í morgunútvarpið á Rás 2 í morgun til Atla Fannars og Gunnu Dísar og ræddi þar um þetta áramótaheit sitt að hætta að nota nikótínpúða. Þar sagði Jakob að sér liði ágætlega en það væri styttri í honum þráðurinn. Hann væri með strengi og stífleika í liðum, væri farinn að gleyma nöfnum og fyndi fyrir heilaþoku. „Að menntaskólagöngu lokinni þá verð í forfallinn fíkill. Ég myndi segja að þetta séu svona tæp tíu ár,“ sagði Jakob um hvernig nikótínfíknin hefði byrjað hjá honum. Jakob var í uppistandi áður en hann fór í dómsmálaráðuneytið. Jakob lýsti því í viðtalinu að hann hefði aldrei orðið almennilegur reykingamaður vegna brjóstsviða sem hann fékk við reykingar. Hann hefði hins vegar notað íslenskt neftóbak lengi vel en fært sig yfir í nikótínpúðana þegar þeir komu til landsins. „Ég myndi aldrei mæla með þessu fyrir einhvern sem er að hlusta og er að hugsa um að byrja,“ sagði Jakob í viðtalinu þegar talið barst að heilsufarslegum áhrifum púðanna. Púðarnir færu illa með tannholdið, leiddu til verkja í gómnum og vörinni, æðarnar þrengdust og hann yrði andstyttri við neysluna. „Það er ekkert eðlilegt að vera með púða alltaf uppi í sér. Þetta er svo auðvelt. Ég er ekkert eitthvað að fá mér fjóra á dag. Þetta er heil dolla á dag. Það er svo mikið nikótín í þessu, nikótínmagnið er svo rosalegt,“ sagði Jakob. Engin gleðistund með nikótínpúðum Það væri ekkert skemmtilegt við neyslu púðanna að mati Jakobs, ólíkt til dæmis áfengi sem væri stundum hluti af gleðistundum þó það væri óhollt. „Það er engin gleðistund við nikótínpúða, þetta er ömurlegt drasl og ógeðslegt,“ sagði Jakob. Það fylgdi því lítið sjálfsálit að troða í sig nikótínpúða, til dæmis á miðjum fundi, það væri eins og fara ekki í sturtu. „Mér hefur alltaf þótt þetta rangt,“ sagði Jakob um nikótínpúðana. „Mér hefur aldrei liðið vel með að vera nikótínfíkill. Ég er líka með heilsukvíða, svona léttan. Mér líður ekkert vel með að gera eitthvað sem er vont fyrir mig,“ sagði Jakob. Hann sagðist stoltur af sér að hafa hætt nikótínpúðaneyslunni en sæi þó ekki fram á að vera virk forvarnarfyrirmynd í framtíðinni. „Ég vona ekki. Mig langar ekki að vera andlit nikótínleysis,“ sagði Jakob og hló..
Nikótínpúðar Fíkn Mest lesið „Þú getur ekki ráðist að mér þegar ég er að borða með ömmu minni“ Tónlist Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Lífið Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Lífið Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Lífið Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Lífið Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Lífið Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Lífið „Ég sef í gallabuxum“ Tíska og hönnun Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli Sjá meira