Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Stefán Árni Pálsson skrifar 20. janúar 2026 10:31 Guðmundur gerir tveggja ára samning við Skagamenn. Eftir fimmtán ár í atvinnumennskunni er Guðmundur Þórarinsson kominn aftur heim. Hann hefur samið við Skagamenn og leikur með þeim í Bestu-deild karla í sumar. Guðmundur gerir samning við Skagamenn til næstu tveggja ára. Guðmundur, lék síðast hér á landi árið 2012 með liði ÍBV í efstu deild en fram að tíma sínum í Vestmannaeyjum hafði hann aðeins spilað með uppeldisfélagi sínu, Selfossi.
Í atvinnumennskunni lék hann með liðum í Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Bandaríkjunum, Grikklandi og nú síðast í Armeníu. „Allt við klúbbinn heillaði mig og allt við Skagamenn heillaði mig,“ segir Guðmundur í sportpakkanum á Sýn í gærkvöldi. „Þeir lögðu mikið á sig að fá mig og hringdu dag og nótt. Konan var að verða geðveik á þeim,“ segir Guðmundur og hlær. „Allt sem þeir kynntu fyrir mér, mitt hlutverk innan vallar og utan, var eitthvað sem ég var gríðarlega spenntur fyrir. Það er alvöru metnaður í gangi þarna og komin ný aðstaða svo það er allt upp á tíu. Þeir eru byrjaðir að æfa klukkan 11 sem eðlilega er spennandi tengt fjölskyldulífi,“ segir Guðmundur en höfðu fleiri lið samband við hann? „Það hefur eitthvað verið talað um aldursfordóma í deildinni en það höfðu ansi mörg lið samband og ég er gríðarlega þakklátur fyrir það. En á endanum stóð þetta á milli þriggja félaga og þetta var frábær lending.“ Skagamenn byrjuðu síðasta tímabil mjög illa en fóru síðan á flug seinnipartinn. „Menn þurfa mæta klárir í mót og það þarf að vera einbeiting á öllu sem við erum að gera. En ég kynnti mér aðeins hópinn og þekki hann aðeins eftir að hafa fylgst vel með síðastliðin tvö ár. Ég er ekkert hræddur við það að segja að við ætlum bara að gera árás. Við erum að byggja upp það spennandi lið og góða aldurssamsetningu finnst mér,“ segir Guðmundur.
ÍA Besta deild karla Mest lesið Verður Aron þjálfari FH? Handbolti Ef ég væri að spila gegn Liverpool myndi ég trúa á sigur Íslenski boltinn Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Enski boltinn Öflug sveit á Norðurlandamótið Sport Guðni eftir sigur FH: „Gáfumst aldrei upp“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi Íslenski boltinn Enn er Rosenborg í veseni Fótbolti Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Enski boltinn Haukar ósigraðir á toppnum Íslenski boltinn Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 0-1 | Sterkur Stjörnusigur í Laugardal Íslenski boltinn Fleiri fréttir Guðni eftir sigur FH: „Gáfumst aldrei upp“ Væri alveg til í að taka markið á mig Uppgjörið: Víkingur R. - Valur 0-1 | Nadía með sigurmark gegn sínu gamla félagi Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 0-1 | Sterkur Stjörnusigur í Laugardal Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi „Þetta er frá meistara Jankó” Uppgjörið: Fram - Þór/KA 3-2 | Sendu norðankonur á botninn Haukar ósigraðir á toppnum Uppgjörið: ÍBV - Grindavík/Njarðvík 1-1 | Dramatískt jöfnunarmark í uppbótartíma Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Uppgjörið: Breiðablik - KR 6-3 | Kennslustund í Kópavogi „Við réðum ekkert við þá“ „Þetta small saman í kvöld“ Afturelding við hlið Þróttar á toppnum eftir mikinn markaleik „Sérstaklega sætt að vinna hér á KA vellinum“ Uppgjörið: Stjarnan - Fram 0-1 | Sigurmark Róberts færir Fram nær toppnum Víkingur R. - FH 5-0 | Markaveisla í Víkinni Keflavík - Þór 1-0 | Baráttusigur í nýliðaslagnum KA - Valur 0-1 | Valsmenn stöðvuðu sigurgöngu KA Allur ágóði tónleika Loga til Ingvars Sjáðu glæsimörk Gíslanna og endurkomu Eyjamanna „Allir tilbúnir að hrauna yfir þjálfarann“ „Leið aldrei eins og við værum að sigla þessu heim“ Fékk að vita af skiptunum klukkan tvö í gær Úlfur Ágúst sleit liðband Sjá meira