Ingibjörg býður sig fram í formanninn Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 20. janúar 2026 09:39 Ingibjörg Isaksen, formaður þingflokks Framsóknar. Mynd/Steinunni Þorvaldsdóttur Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, gefur kost á sér til formanns Framsóknarflokksins á komandi flokksþingi Framsóknar í febrúar. Ingibjörg greinir frá framboði sínu á samfélagsmiðlum nú í morgun. Hún segir stöðu flokksins kalla á breytingar og að sjálf sé hún tilbúin til að bretta upp ermar. „
Ég býð mig fram til formennsku á komandi flokksþingi Framsóknar og sækist eftir umboði okkar öflugu grasrótar til að leiða flokkinn inn í nýja tíma. Við erum í stjórnmálum til að hafa áhrif. Flokkurinn okkar stendur á tímamótum og það gerir íslenskt samfélag líka,“ skrifar Ingibjörg meðal annars í færslunni. Hún reifar jafnframt feril sinn í stjórnmálum og nefnir meðal annars áskoranir sem við blasi á sviði efnahagsmála, í alþjóðakerfinu og ekki síður hvað lýtur að málefnum barna og ungmenna svo fátt eitt sé nefnt. Staðan kalli á breytingar og kosningar framundan „Framundan eru sveitarstjórnarkosningar um allt land þar sem tækifærin eru okkar. Framsókn er sterk á sveitarstjórnarstiginu en betur má ef duga skal. Þar skiptir öflug grasrót flokksins okkar sköpum. Sjaldan eða aldrei, hefur mér fundist rödd Framsóknar skipta meira máli og erindi okkar jafnt brýnt. Kæru félagar. Staða flokksins kallar á breytingar og verkefnin framundan eru ærin. Nú tekur við vinnan við að ávinna okkur traust landsmanna, tala skýrt og sækja fram. Ég lofa ykkur því að njóti ég stuðnings ykkar til formanns mun ég leggja mig alla fram um að vinna í þágu ykkar fólksins, jafnt í höfuðborginni sem og á landsbyggðinni. Ég treysti mér í verkin og er reiðubúin að bretta upp ermar,“ skrifar Ingibjörg ennfremur undir lok færslunnar sem má sjá í heild sinni hér að neðan. Nokkrir orðaðir við formannsframboð Fyrir liggur að Sigurður Ingi Jóhannsson, núverandi formaður flokksins, ætlar ekki að gefa kost á sér til áframhaldandi formennsku. Skorað hefur verið einnig á Willum Þór Þórsson og Lilju Alfreðsdóttur til að gefa kost á sér til formennsku, en Einar Þorsteinsson, fyrrverandi borgarstjóri sem einnig hefur verið nefndur í því samhengi, hyggst ekki bjóða sig fram til formanns. Ingibjörg er sú fyrsta til að tilkynna um formannsframboð en samkvæmt heimildum fréttastofu þykir ekki ólíklegt að fleiri muni stíga fram í aðdraganda flokksþings og lýsa yfir framboði. Flokksþing Framsóknar fer fram helgina 14. til 15. febrúar á Hilton hótel Nordica í Reykjavík þar sem ný forysta verður kjörin. Þegar hefur Stefán Vagn Stefánsson boðið sig fram til varaformanns og Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir býður sig áfram fram til að gegna embætti ritara. Fréttin hefur verið uppfærð.
Framsóknarflokkurinn Alþingi Flokksþing Framsóknar 2026 Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Erlent Enn skelfur í Bárðarbungu Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Fleiri fréttir Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Sjá meira