„Það er ekki laust við að það fari um mann“ Árni Sæberg skrifar 21. janúar 2026 12:27 Snorri Másson er varaformaður Miðflokksins. Vísir/Anton Brink Miðflokkurinn mælist nú með rúmlega 22 prósenta fylgi, aðeins fimm prósentum minna en Samfylking og mun meira en næstu flokkar á eftir. Varaformaðurinn segir að hann finni fyrir ákalli um breytt stjórnmál og að mikilvægt sé að Miðflokksmenn haldi áfram að tala skýrt um þau.
Líkt og fjallað var um í hádegisfréttum Bylgjunnar nemur fylgisaukning Miðflokksins frá kosningum í nóvember 2024 nemur tíu prósentum. Fylgi Samfylkingar hefur aukist um 6,2 prósent frá kosningum en í skoðanakönnunum eftir kosningar hefur hann mest mælst með 31,9 prósent. Oddur Ævar Gunnarsson fréttamaður ræddi tíðindin við Snorra Másson, varaformann Miðflokksins, í Alþingishúsinu í morgun. „Svona er alltaf mjög ánægjulegt að sjá og það er ekki laust við að það fari um mann í einhverjum skilningi. Maður finnur fyrir þrýstingnum og pressunni að einhverju leyti og væntingunum sem við finnum fyrir frá samfélaginu, um að við raunverulega getum náð að komast til áhrifa og breyta stjórnmálunum. Ég finn sannarlega fyrir ákalli um breytt stjórnmál,“ segir hann. Þurfi ekki að passa sig Miðflokksmenn hafi ferðast vítt og breitt um landið undanfarnar vikur og haldið fjölmenna fundi. Alls staðar þar sem þeir hafi komið hafi hann fundið fyrir raunverulegum breytingum, sérstaklega gagnvart Miðflokknum. „Ég hef verið að segja við fólk að við bjóðum alla velkomna um borð í Miðflokknum. Það eru mjög margir að koma til liðs við okkur. Þetta er stækkandi hreyfing en engu að síður þá þurfum við auðvitað að vanda til verka.“ Þegar vel gangi byrji fólk að tala um það að Miðflokksmenn þurfi að fara varlega og passa sig. „Ég segi, við þurfum ekki að passa okkur. Við verðum bara að halda áfram að tala skýrt um stjórnmálin.“ Hugsar ekki um hvaðan fylgið kemur Undanfarið hefur mikið verið talað um það að Miðflokkurinn sé að sækja gríðarlega fylgisaukningu sína beint í kjósendahóp Sjálfstæðisflokksins. „Augljóslega kemur fylgið úr öllum áttum, ekki síst Sjálfstæðisflokki en væntanlega líka úr öðrum flokkum á öllu rófinu. Ég reyni að hugsa sem minnst um það, sérstaklega í ljósi þess að við lifum tíma þar sem að mörgu leyti er verið að fleygja öllu bara upp í loft, hvort sem það er í heimsmálunum eða hér á Íslandi og einhvers staðar þarf þetta að lenda. Ég fagna því bara ef þetta lendir hjá okkur.“ Auknu fylgi fylgi mikil ábyrgð og Miðflokksmenn reyni að taka við auknum áhuga en halda samt kúrs. Skynsemi í útlendingamálum skili auknu fylgi Heldur þú að það sé útlendingastefnan ykkar sem skilar ykkur þessu fylgi? „Ég held að stór hluti kjósenda okkar líti til okkar vegna áherslu á skynsemi í útlendingamálum og í raun og veru allt aðra nálgun en verið hefur í íslenskum stjórnmálum. Varðstaða okkar um fullveldi íslensku þjóðarinnar, skynsemi í flestum öðrum málum, það er að segja að horfa á með, því sem einhver myndi mögulega kalla, kaldlyndi á hagsmuni íslensku þjóðarinnar og reyna að vinna út frá því frekar en til dæmis einhverjum uppblásnum, loftkenndum hugsjónum, sem hafa kannski verið lenskan hingað til. Ég held að við lifum tíma þar sem að menn þurfi svolítið að segja hlutina eins og þeir eru og við reynum að gera það. Og ég vona að það haldi áfram að skila okkur einhverju.“
Miðflokkurinn Skoðanakannanir Alþingi Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til vegna gruns um að maður hafi fallið í Ölfusá „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið Sjá meira