Telur starf Guardiola í hættu: „Hélt ég myndi aldrei á minni lífsleið segja þetta“ Sindri Sverrisson skrifar 21. janúar 2026 15:02 Arnar Gunnlaugsson segir Pep Guardiola búinn að rífa biblíuna sína í sundur og endurskrifa hana. Samsett/Getty Eftir tvö „sannfærandi“ töp í röð hjá Manchester City, gegn Manchester United og norska liðinu Bodö/Glimt, segir Arnar Gunnlaugsson mögulegt að Pep Guardiola verði hreinlega rekinn, þrátt fyrir allt sem hann hefur áorkað á sínum einstaka ferli. „
Ég hélt ég myndi aldrei segja þetta en það er möguleiki á að hann verði rekinn,“ sagði Arnar í Meistaradeildarmörkunum á Sýn Sport í gærkvöld. Brot úr þættinum má sjá hér að neðan. Klippa: Arnar fór yfir stöðu Pep Guardiola Arnar sagði aðra þjálfara, meira að segja þjálfara smáliðs í Meistaradeildinni á borð við Bodö/Glimt, hafa tekist að „outsmarta“ Guardiola í vetur. Þó að liðið sé í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og 7. sæti Meistaradeildar Evrópu sýni síðustu leikir að eitthvað mikið vanti upp á. „Það er sama vandamál að eiga sér stað núna og í fyrra – þeir ráða ekki við að missa boltann. Það var aðalsmerki biblíunnar hjá Guardiola, að bregðast við því hvað þyrfti að gera ef liðið missti boltann. Krabbameinið frá því í fyrra er að endurtaka sig heldur betur í síðustu leikjum. Auðvitað vantar 2-3 hafsenta en þá þarf kerfið að taka utan um nýju leikmennina. Það á að vera það sterkt hjá liði eins og City að það taki utan um ungu strákana. Kerfið er að bregðast, frekar en einhverjir einstakir leikmenn,“ sagði Arnar og lét svo enn stærri orð falla þegar hann sagðist telja mögulegt að Guardiola yrði sparkað. „Næsta þrep á eftir stolti er stundum heimska“ „Ég hélt ég myndi aldrei á minni lífsleið segja þetta. City-menn eru með miklu betri greiningartækni en við nokkurn tímann, komnir með skrímsli í ákvörðunartökum og strúktúr. Þeim er ekki skemmt sko. Alveg eins og Chelsea og þessum liðum var ekki skemmt. Þú færð ekki endalausan séns í íþrótt eins og fótbolta. Ég hélt ég myndi aldrei segja þetta því hann er búinn að breyta leiknum, en hann er bara á rangri leið núna í taktíkinni. Næsta þrep á eftir stolti er stundum heimska. Það er oft rosa þunn lína þarna. Ég ætla ekki að segja að hann sé heimskur en stoltið er kannski aðeins að vefjast fyrir honum,“ sagði Arnar og Atli Viðar Björnsson tók undir með honum: „Manni finnst það eitthvað svo fjarstæðukennt að Manchester City gæti rekið Guardiola en allir þjálfarar heims væru í hættu með þennan leikmannahóp í höndunum, og þann árangur sem hann hefur sýnt síðan fyrir jól.“
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Enski boltinn Mest lesið Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti KR - Víkingur 1-1| Arnór Ingvi bjargaði stigi fyrir KR á lokasekúndunni Íslenski boltinn Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Íslenski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Fleiri fréttir Albert til Lazio og kaupákvæði fylgir með Lið Salah þjálfaralaust eftir furðulega daga Íslendingalið Brann hlaut þungan skell Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann KR - Víkingur | Stærsti leikur tímabilsins Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Slær Aron markametið í kvöld? McTominay í hjartaaðgerð „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Sjá meira