Svona var lokaumferðin í Meistaradeildinni Ágúst Orri Arnarson skrifar 28. janúar 2026 19:00 36 lið lögðu leið sína að Meistaradeildartitlinum í haust en aðeins 24 þeirra komast áfram í næstu umferð. Michael Regan/Getty Images Vísir fylgdist með öllu því helsta sem gerðist í öllum átján leikjunum í lokaumferð Meistaradeildar Evrópu. Sviptingar urðu á síðustu stundu og stórlið sitja eftir í umsspilssætunum. Stöðutöfluna má finna í vaktinni neðst í fréttinni. Sporting komst áfram á kostnað stórliða Sporting sótti dramatískan 3-2 sigur á útivelli gegn Athletic Bilbao. Sporting lenti tvisvar undir en jafnaði í bæði skipti og Alisson Santos tryggði þeim sigurinn á fjórða mínútu uppbótartímans. Með sigrinum stökk Sporting upp í 7. sætið en skildi Real Madrid, Inter, PSG og Newcastle eftir í umspilssætum. City þakkar Newcastle og PSG fyrir jafnteflið Manchester City slefaði naumlega inn í efstu átta sætin, með 2-0 sigri gegn Galatasaray og öðrum hagstæðum úrslitum. City menn vissu að þeir þyrftu að vinna og treysta á að liðin fyrir ofan myndu tapa stigum. Þeim varð að ósk sinni, Newcastle og PSG skildu jöfn 1-1 og þannig stakk City sér fram fyrir. Erling Haaland skoraði fyrra mark City gegn Galatasaray og Jeremy Doku tvöfaldaði forystuna. Í leik PSG og Newcastle bætti Vitinha upp fyrir vítaklúður Ousmané Dembélé og tók foyrstuna fyrir PSG. Joe Willock jafnaði svo fyrir Newcastle, og hélt að hann hefði skorað sigurmarkið en það var dæmt af. Markmaðurinn tryggði Benfica áfram og Bodö/Glimt vann í Madríd Topp þrír breyttust ekki en Tottenham tók fjórða sætið Arsenal (3-2 gegn Kairat), Bayern (2-1 á útivelli gegn PSV) og Liverpool (6-0 gegn Qarabag) héldu efstu þremur sætunum. Tottenham tók hins vegar stökk upp í fjórða sætið, þökk sé 2-0 sigri á útivelli gegn Frankfurt og tapi Real Madrid gegn Benfica. Framherjarnir Randall Kolo Muani og Dominic Solanke skoruðu mörk Tottenham í seinni hálfleik. Viktor Bjarki var ekki nóg fyrir FCK Viktor Bjarki Daðason skoraði fyrir FCK á fjórðu mínútu gegn Barcelona en markið dugði skammt því heimamenn áttu eftir að setja fjögur í seinni hálfleik. Barcelona vann leikinn 4-1 og sendi FCK úr keppni. Fylgst var með gangi mála í vaktinni hér fyrir neðan og allar færslur kvöldsins, ásamt stöðutöflu, má finna þar.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti KR - Víkingur 1-1| Arnór Ingvi bjargaði stigi fyrir KR á lokasekúndunni Íslenski boltinn Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Íslenski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Fleiri fréttir KR - Víkingur 1-1| Arnór Ingvi bjargaði stigi fyrir KR á lokasekúndunni Albert til Lazio og kaupákvæði fylgir með Lið Salah þjálfaralaust eftir furðulega daga Íslendingalið Brann hlaut þungan skell Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Slær Aron markametið í kvöld? McTominay í hjartaaðgerð „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Sjá meira