„Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Tómas Arnar Þorláksson og Eiður Þór Árnason skrifa 31. janúar 2026 11:42 Hér sést glitta í annað strætóskýlið við Aktu Taktu vinstra megin á myndinni. Vísir/vilhelm Tvenn ungmenni réðust á karlmann á fimmtugsaldri við strætóbiðstöð við Hafnarfjarðarveg til móts við Aktu taktu skömmu fyrir miðnætti í gær. Málið er rannsakað sem stórfelld líkamsárás. Brotaþoli var fluttur á slysadeild en lítið er vitað um líðan mannsins.
Hópur fjögurra til sex ungmenna á aldrinum sextán til sautján ára var á staðnum en tveir tóku þátt í árásinni, að sögn lögreglu. Þrír eða fjórir lögreglubílar voru sendir á vettvang og einn handtekinn. Honum var sleppt að lokinni yfirheyrslu. „Ég held að hann hafi bara verið þarna að bíða eftir strætó og þau komið þarna og svo hafi eitthvað kastast í kekki á milli þeirra,“ segir Jóhann Karl Þórisson aðstoðaryfirlögregluþjónn en tekur fram að enn eigi eftir að ræða frekar við vitni. Umrætt strætóskýli nærri Ásgarði í Garðabæ þar sem starfræktur er veitingastaður undir merkjum Aktu taktu.Já.is Spjallað við stelpur „Það hefur verið einhver lítill neisti sem kveikti þetta bál.“ Ekki sé vitað til þess að tengsl séu milli brotaþola og árásarmannanna. Þeir hafi ekki notast við vopn eða barefli. „Hann fer að spjalla við einhverjar stelpur og svo koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft,“ bætir Jóhann við. Málið sé nú til rannsóknar sem stórfelld líkamsárás og barnaverndaryfirvöld komi að málinu. Jóhann var ekki með upplýsingar um líðan mannsins. Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.
Lögreglumál Hafnarfjörður Tengdar fréttir Maður hlotið stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna Hópur ungmenna veittist að manni sem hlaut stórfellt líkamstjón af árásinni, að sögn lögreglu. Eitt ungmennið var handsamað í kjölfarið og er málið nú til rannsóknar. 31. janúar 2026 09:54 Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Sjá meira
Maður hlotið stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna Hópur ungmenna veittist að manni sem hlaut stórfellt líkamstjón af árásinni, að sögn lögreglu. Eitt ungmennið var handsamað í kjölfarið og er málið nú til rannsóknar. 31. janúar 2026 09:54