Böðvar kominn til ÍA frá FH Sindri Sverrisson skrifar 4. febrúar 2026 13:45 Böðvar Böðvarsson verður í gulu í sumar. ÍA/Jón Gautur Eftir að hafa verið tilkynnt að krafta hans væri ekki lengur óskað í Kaplakrika hefur Böðvar Böðvarsson verið eftirsóttur. ÍA vann kapphlaupið og samdi við þennan þrítuga bakvörð til tveggja ára.
Skagamenn, sem enduðu í 8. sæti Bestu deildarinnar í fyrra eftir afar sveiflukennt tímabil, halda því áfram að bæta við sig reynslumiklum og öflugum leikmönnum. Áður hafði félagið fengið þá Gísla Eyjólfsson og Guðmund Þórarinsson í sínar raðir. Böðvar á að baki fimm A-landsleiki fyrir Ísland og hefur leikið yfir hundrað leiki í atvinnumennsku í efstu deildum Svíþjóðar og Póllands. Hann er uppalinn FH-ingur og varð Íslandsmeistari með liðinu árin 2015 og 2016, og hefur svo leikið með liðinu síðustu tvö ár eftir komuna heim úr atvinumennsku. Nýr þjálfari FH, Jóhannes Karl Guðjónsson, ku hins vegar ekki hafa verið með Böðvar í sínum framtíðarplönum og mátti hann því finna sér nýtt félag. „Við bindum miklar vonir við Böðvar sem bætir við miklum sigurvilja, reynslu og gæðum í leikmannahóp liðsins,“ segja Skagamenn sem tilkynntu um komu Böðvars í dag. Í tilkynningu FH er Böðvari þakkað fyrir hans störf og óskað velfarnaðar. „Það er erfitt að kveðja Bödda en í ljósi þess að útlit var fyrir að hlutverk hans yrði minna í ár en síðastliðin tvö ár þá var þetta niðurstaðan. Böðvar hefur átt glæsilegan feril hjá FH og verður alltaf einn af okkur,“ sagði Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá FH.
Besta deild karla ÍA Mest lesið Medalíur að skemmast á Vetrarólympíuleikunum Sport Sjáðu liðin sem Strákarnir okkar geta ekki mætt í riðlakeppni HM Handbolti Gjóðarnir unnu Super Bowl sannfærandi Sport „Hún hegðar sér eins og díva“ Sport Hópurinn gegn Mexíkó: Gylfi snýr aftur í landsliðið Fótbolti Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Enski boltinn Fyrstu íslensku ÓL-feðginin: „Draumur sem ég vissi varla að væri til“ Sport Orri hlýtur mikið lof og skákar Mbappé Fótbolti „Eins og hann sé að grátbiðja um að verða seldur“ Enski boltinn Bad Bunny hljóp lengra en lið Patriots Sport Fleiri fréttir Freyja með þrennu er Víkingur valtaði yfir Fram Hallgrímur bætist við landsliðshópinn Kristján krækti í einn besta leikmann Bestu deildarinnar Guðmundur Magnússon skiptir úr bláu í grænt Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö FH sækir sænskan miðvörð „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Sjá meira