Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Hólmfríður Gísladóttir skrifar 5. febrúar 2026 09:15 Atvinnuleysi jókst um tvö prósent milli ára. Vísir/Anton Brink Atvinnuleysi mældist fimm prósent á fjórða ársfjórðungi 2025, þegar 11.800 einstaklingar voru atvinnulausir að meðaltali. Til samanburðar voru 6.800 einstaklingar atvinnulausir á fjórða ársfjórðungi 2024, þegar atvinnuleysi mældist 2,9 prósent.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Atvinnuþátttaka á síðasta ársfjórðungi 2025 var 80 prósent og hlutfall starfandi einstaklinga af mannfjölda 76 prósent. Alls voru 72,3 prósent kvenna starfandi og 79,4 prósent karla. „Að jafnaði voru 200.400 manns við vinnu í hverri viku ársfjórðungsins eða 90,4% starfandi fólks og 68,7% af heildarmannfjölda 16–74 ára. Meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku var 35,8 klukkustundir hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 40,5 klukkustundir hjá þeim sem voru í fullu starfi og 22,2 klukkustundir hjá þeim sem voru í hlutastarfi,“ segir í tilkynningu Hagstofunnar. Ef staðan er borin saman við síðasta ársfjórðung 2024 jókst fjöldi starfandi kvenna um 1.200 milli ára á meðan starfandi körlum fækkaði um 3.200. Atvinnulausum konum fjölgaði um 3.100 og körlum um 1.900. Alls voru 164 þúsund í fullu starfi, eða 74,1 prósent, og 57.400 í hlutastarfi, eða 25,9 prósent. „Af þeim sem voru í hlutastarfi töldust um 11.500 manns vinnulitlir eða 5,2% af öllum starfandi. Á sama ársfjórðungi 2024 voru 4,1% vinnulitlir en þá var fjöldi þeirra 9.100. Til vinnulítilla telst fólk í hlutastarfi sem bæði getur og vill vinna fleiri vinnustundir en það gerir.“ Meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku var 35,8 klukkustundir en þær voru 36,5 á sama tíma árið 2024.
Vinnumarkaður Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fleiri fréttir 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Sjá meira