„Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 5. febrúar 2026 19:02 Sigvarður Hans Ísleifsson segir það hafa tekið á að segja forsætisráðherra sögu sína. Vísir/Lýður Valberg Þrír menn sem vistaðir voru á sveitabænum Bakkakoti í barnæsku og beittir grófu ofbeldi yfir langt skeið hittu forsætisráðherra í stjórnarráðinu í dag. Þeir vilja að fósturkerfið verði tekið til alvarlegrar skoðunar og hvetja fleiri til að stíga fram.
Fjallað var um mál mannanna í Kveik í fyrradag en tíu manns hafa stigið fram og lýst grófu ofbeldi sem þeir urðu fyrir á sveitabænum Bakkakoti á Rangárvöllum þangað sem fjöldi barna var sendur í vistun á að minnsta kosti 27 ára tímabili frá 1975 til 2002. Þrír fulltrúar tímenninganna mættu í dag í stjórnarráðið til fundar við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra. Kristrún veitti ekki kost á viðtali vegna málsins í dag. Hvetja aðra til að stíga fram „Ég veit eiginlega ekki hvað ég á að segja annað en bara takk til þjóðarinnar að standa við bakið á þeim sem voru á þessum stað. Við höldum að sjálfsögðu ótrauðir áfram að vinna í þessu máli og hvetjum aðra til að stíga fram líka sem hafa svipaða sögu,“ segir Svavar Þór Georgsson einn þremenninganna. Þeir vilji fyrst og fremst knýja fram breytingar sem tryggi öryggi barna sem komið sé fyrir á fósturheimilum. „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra og ég hef trú á því að það verði gert eitthvað í þessu og einhverjar breytingar varðandi eftirlit með börnum,“ segir Sigvarður Hans Ísleifsson annar þremenninganna. „Svo kom fram að það er betra eftirlit með fóðri dýra heldur en börnum á vistheimilum í landinu. Þannig ég vona innilega að þetta leiði til jákvæðra breytinga.“ Tók á að ræða ofbeldið Það hafi tekið á að stíga fram með þessum hætti og ræða ofbeldið frammi fyrir alþjóð. „Við erum búnir að vera bæði stressaðir og hræddir og líka áðurinn en þátturinn kom út: Verður okkur trúað, hvað á eftir að gerast? Eigum við eftir að fá hótanir eða verður reynt að þagga niður í okkur?“ Þeir hafi hinsvegar fundið fyrir miklum stuðningi. Lögmaður þeirra segist eiga von á að þeir muni funda oftar með forsætisráðherra, en vildi að öðru leyti ekki tjá sig efnislega um kröfur mannanna. „Við vildum leyfa strákunum að tjá sig líka, segja frá því sem ekki kom fram í þættinum. Það er gríðarlegt magn upplýsinga sem ekki kom fram í þessum þætti, þetta var bara klukkutíma langur þáttur, þannig eins og ég segi, þetta er bara rétt að byrja.“
Ofbeldi gegn börnum Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Barnavernd Mál fósturbarna á Bakkakoti Mest lesið Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Erlent Fleiri fréttir Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Grunaður um að ofsækja son sinn sem sleit á öll tengsl Átta vilja vera forstjóri Hafró Eldur kviknaði í veitingastað í nýja miðbænum á Selfossi Erfitt að fullyrða nokkuð um orsakasamhengi milli 4G og fæðingartíðni Tónlistarskólar FÍH og Eddu Borg sameinast í þéttum takti Handtökur í tengslum við ræktun og þrjú skotvopn haldlögð Sjá meira