Atvinnulíf

Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Annan hvern morgunn fær Lára Hrafnsdóttir, markaðsstjóri Sjóvá, kaffibolla í rúmið og annan hvern morgunn færir hún manninum sínum kaffi í rúmið. Skýringin er kerfi sem þau hafa á morgnana og hefur gefist vel, þar sem þau skiptast á að vakna snemma með litlum börnum.
Annan hvern morgunn fær Lára Hrafnsdóttir, markaðsstjóri Sjóvá, kaffibolla í rúmið og annan hvern morgunn færir hún manninum sínum kaffi í rúmið. Skýringin er kerfi sem þau hafa á morgnana og hefur gefist vel, þar sem þau skiptast á að vakna snemma með litlum börnum. Vísir/Vilhelm

Lára Hrafnsdóttir, markaðsstjóri Sjóvá, segir miklu skipta að fara vel til höfð inn í daginn, þannig líði henni eins og hún sé geðveikt hress þótt svefnstundirnar hafi ekki verið margar.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Ég vakna yfirleitt á milli sex og sjö, eða réttara sagt, börnin vekja mig. Við erum með tvö lítil börn sem vakna til skiptis á nóttunni og því skiptumst við maðurinn minn á að taka morguninn. 

Annan hvern morgun fær annað okkar að sofa aðeins lengur og hitt kemur með kaffibolla í rúmið. Þetta hentar okkur vel og gerir morgnana aðeins notalegri og léttari.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Kaffi, alltaf kaffi. Svo morgunmatur og vítamín. Ég er líka dugleg að búa um rúmin og hafa mig aðeins til áður en ég fer út, mér finnst ég ekki alveg komin í gang fyrr en mér líður vel með sjálfa mig.

Vinkonur mínar hafa oft gert grín að þessu, sérstaklega í fæðingarorlofinu, þegar ég var alveg fær um að grípa Dyson-græjuna bara fyrir kaffihúsaspjall eða göngutúr. En fyrir mig skiptir máli að skilja vel við heimilið og fara vel til höfð inn í daginn. 

Þetta hjálpar mér mikið, sérstaklega þegar nætursvefninn hefur verið af skornum skammti. 

Á ákveðinn hátt plata ég sjálfa mig í að líða eins og ég sé geðveikt fersk, jafnvel þótt nætursvefninn hafi verið af skornum skammti.

Á skalanum 0-10 hversu mikill prakkari ertu í þér?

„Erfið spurning! Held ég hafi aldrei pælt í þessu og ég hef sjaldan eða aldrei verið skilgreind sem prakkari. En ef ég hugsa þetta aðeins þá myndi ég setja mig svona í kringum 6, ég er nefnilega smá laumuprakkari. Í daglegu lífi er ég frekar róleg og mér finnst í raun hversdagsleikinn bestur. 

Mér líður vel í rútínu og þegar hlutirnir ganga sinn vanagang. En mér finnst líka gaman að brjóta aðeins upp á rútínuna og hef gaman af því að bjóða fólki saman og skapa góða stemningu. Ég held til dæmis alltaf upp á afmælið mitt og tek það verkefni mjög alvarlega. Ég hef bara mjög gaman af því að safna fólki saman og skapa góða stemningu. Ef það er dansgólf og góð tónlist, þá er hægt að finna mig þar.

Þannig að ég er kannski ekki prakkari dagsdaglega, en þegar stemningin er góð, þá er yfirleitt hægt að finna mig þar. Það er hollt að sleppa sér stundum og við höfum öll gott af því.“

Lára segist leggja áherslu á stöðuga forgangsröðun verkefna og að sjá stóru myndina frekar en að festa sig í smáatriðum. Það sé sú nálgun sem virki best fyrir hana til að halda utan um skipulagið.Vísir/Vilhelm

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst þessa dagana?

„Mitt helsta verkefni þessa dagana er án efa foreldrahlutverkið. Börnin eru lítil og þetta er tíminn þar sem maður er þeim allt, þannig að við maðurinn minn viljum bara nýta dagana vel með þeim. Þessi ár koma jú ekki aftur og við erum dugleg að minna hvort annað á það. Dagarnir eru yfirleitt algjört púsluspil, stundum gengur allt upp og stundum alls ekki.

Ég elska líka vinnuna mína og er mjög þakklát fyrir að vera í starfi sem ég hef raunverulega gaman af. Í mínu starfi snýst þetta um að halda utan um og þróa vörumerki Sjóvár á tíma þar sem tryggingamarkaðurinn er að breytast hratt og ég get sagt það frá hjarta mínu að tryggingar eru mun skemmtilegri en margir halda!

Markaðurinn er á mikilli hreyfingu og tryggingafélög eru í auknum mæli að færast undir hatt fjármálafyrirtækja. Samhliða því hefur samkeppnin aukist töluvert, sem þýðir að skýr staða og trúverðugleiki skipta meira máli en áður. Afstaða Sjóvá er mjög skýr í þessum efnum og það er fókus á tryggingar. Við þjónustum mjög fjölbreyttan hóp fólks, á öllum aldri og í ólíkum aðstæðum. Því snýst stór hluti vinnunnar um að þróa bæði vörur og stafrænar dreifileiðir í takt við breyttar þarfir og væntingar. Þetta er umfangsmikið verkefni sem margir koma að en mikill metnaður er innan fyrirtækisins um að gera þetta vel.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Ég vinn best í síbreytilegu umhverfi og skipulagið breytist svolítið eftir því hvað er á dagskrá hverju sinni. Starfið er mjög fjölbreytt og engir tveir dagar eins, þannig að þetta snýst frekar um stöðuga forgangsröðun en að vera með stífa dagskrá. Það koma reglulega upp verkefni sem þarf að bregðast við strax og þá skiptir mestu máli að halda góðri yfirsýn og vita hvað má ekki falla á milli skips og bryggju.

Fyrir mér snýst skipulagið því fyrst og fremst um að sjá stóru myndina, frekar en að festa sig í smáatriðum. Það er sú nálgun sem virkar best fyrir mig.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Ég reyni að fara snemma að sofa, helst fyrir tíu, þó að það gangi ekki alltaf. Það er fátt betra eftir langan dag en að slökkva alveg á heilanum og það tekst mér að gera með smá skrolli á TikTok eða jafnvel einum Love Island þætti. Þetta er ekki beint fyrirmyndarsvefnvenja og ég þarf að fara að hætta þessu, lesa góða bók í staðinn. Ég er mjög meðvituð um það.“


Tengdar fréttir

„Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“

Snorri Björn Sturluson, fasteignasali, lögfræðingur og annar eigandi Valhallar fasteignasölu, tekur slurk í heimilisstörfunum fyrir vinnu á morgnana, þegar hann er of latur til að fara í ræktina. En segist þó almennt vonlaus í heimilisstörfunum og fær því stundum aðstoð við þrifin.

Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“

Hreggviður Steinar Magnússon, Reggie,  framkvæmdastjóri Ceedr, segir stundum þurfa að minna eiginkonuna á háttatímann. Því nú sé hún komin með prjónaveikina frá ömmu sinni. Hreggviður  segir rómantík snúast um að segja ég elska þig á marga ólíka vegu.

Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi

Ólöf Kristjánsdóttir, CMO hjá Taktikal og formaður WomenTechIceland, sveiflast á milli þess að fasta á morgnana eða borða morgunmat. Enda hvoru tveggja sagt svo hollt. Hárið er orðið óstýrilátara en áður og þrátt fyrir rándýran búnað tekst henni illa að venja sig á kaffi.

Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni

Jón Ingi Ingibergsson, sviðsstjóri skatta- og lögfræðisviðs PwC á Íslandi og verðandi forstjóri, upplifði það eitt sinn að vera endurnærður allt þar til hann sá á Garmin úrinu að svefnskorið var arfaslakt fyrir nætursvefninn. Þá helltist yfir hann mikil þreyta og allt varð miklu erfiðara. Þegar Jón nennir ekki að strauja, mætir hann í peysu í vinnuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×