Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Eiður Þór Árnason skrifar 6. febrúar 2026 21:32 Hákon krónprins Noregs og Mette-Marit krónprinsessa á Nóbelsverðlaunaviðburði í Osló árið 2024. EPa//STIAN LYSBERG SOLUM „Við skiljum þau sterku viðbrögð sem fólk hefur sýnt vegna þess sem fram hefur komið síðustu daga.“ Svona hefst ný yfirlýsing frá norsku konungsfjölskyldunni en styr hefur staðið um krónprinsessuna Mette-Marit eftir að skjöl vörpuðu ljósi á samskipti hennar við Jeffrey Epstein eftir að hann varð dæmdur fyrir kynferðisafbrot.
Mette-Marit er sögð vilja greina betur frá því hvað átti sér stað og útskýra sína hlið mála en sé ókleift að gera það þessa stundina. „Krónprinsessan er í mjög krefjandi stöðu. Hún væntir skilnings á því að hún þurfi tíma til að ná áttum.“ Í yfirlýsingunni er hún sögð fordæma harðlega misnotkunartilburði Epsteins og glæpsamlegt athæfi hans. „Henni þykir mjög leitt að hafa ekki áttað sig fyrr á því hvers konar maður hann var.“ Sér eftir því að hafa sett konungshjónin í erfiða stöðu „Ég sé mikið eftir vináttu minni við Jeffrey Epstein. Það er mikilvægt fyrir mig að biðja alla þá sem ég hef valdið vonbrigðum afsökunar. Sumt af því sem fram kemur í skilaboðunum milli mín og Epsteins endurspeglar ekki þá manneskju sem ég vil vera. Ég biðst einnig afsökunar á þeirri stöðu sem ég hef sett konungsfjölskylduna í, sérstaklega konunginn og drottninguna,“ er að lokum haft eftir Mette-Marit. Mette-Marit hefur áður beðist afsökunar á tengslum sínum við Epstein en skjöl sem birt voru fyrir um viku sýna að hún hafi átt í samskiptum við hann lengur en hún hafði áður gefið út. Þá hefur hún viðurkennt að hafa dvalið á heimili Epsteins á Palm Beach í Flórída árið 2016. Norska konungsfjölskyldan hafði áður gefið út að Mette-Marit hefði hætt samskiptum við hann árið 2013. Nafn hennar birtist nokkur hundruð sinnum í Epstein-skjölunum svokölluðu. Sagði París henta vel til framhjáhalds Tölvupóstssamskipti milli Epsteins og Mette-Marit sýna að þau hafi gjarnan boðið hvort öðru í hádegisverð, kaffi og jafnvel verslunarferðir. Þá kemur enn fremur fram í póstsamskiptunum hennar við aðstoðarmann Epsteins að hún hafi planað að gista í lúxussloti kynferðisbrotamannsins í Palm Beach árið 2013. Þegar þarna var komið við sögu hafði Epstein þegar játað að hafa selt ólögráða stúlkur í vændi árið 2008. Árið 2012 áttu þau meðal annars samræður um yfirstandandi „brúðarveiðar“ Epsteins í Parísarborg. Hann var þá dæmdur kynferðisafbrotamaður. „París hentar vel til framhjáhalds. Skandinavar eru betra brúðarefni,“ skrifaði krónprinsessan norska meðal annars. Hún hefur áður sagst sjá eftir samskiptum sínum við Epstein, hún hafi sýnt af sér slæma dómgreind og finnist þetta mál allt hið pínlegasta. Síðast í dag vakti gömul ljósmynd af Mette-Marit með Ghislaine Maxwell, fyrrverandi aðstoðarkonu og um tíma kærustu Jeffreys Epstein, og Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú Íslands, athygli í norskum fjölmiðlum. Umfangsmikið gagnasafn Epstein-skjölin innihalda öll þau gögn sem bandarísk dómsmálayfirvöld hafa aflað í gegnum árin vegna rannsókna sem tengjast brotum kynferðisbrotamannsins Jeffreys Epstein og annarra sem honum tengjast, eins og Ghislane Maxwell, fyrrverandi kærustu hans og aðstoðarkonu til langs tíma. Meðal annars er um að ræða tölvupósta Epsteins og önnur skilaboð, skrár sem fundust í tölvum hans á borð við myndir sem hann hafði sótt á netið og ýmislegt annað. Það að nafn einhvers komi fram í skjölunum þarf ekki að þýða að viðkomandi hafi verið grunaður um að hafa brotið af sér á einhvern hátt.
Mál Jeffrey Epstein Noregur Kóngafólk Tengdar fréttir Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Norskir fjölmiðlar hafa í morgun birt myndir af Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú Íslands, með þeim Mette-Marit, norskri krónprinsessu, og Ghislaine Maxwell, fyrrverandi aðstoðarkonu og um tíma kærustu Jeffreys Epstein. 6. febrúar 2026 11:34 „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ spyr fréttastjóri hjá Aftenposten í samnefndri grein sem birtist í dag. Birting tölvupóstasamskipta hennar og barnaníðingsins Jeffrey Epstein á dögunum bætir gráu ofan á svart hvað stöðu hennar innan konungsfjölskyldunnar varðar. 1. febrúar 2026 18:30 Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein Norska krónprinsessan Mette-Marit viðurkennir að hafa dvalið á heimili Jeffreys Epstein í Palm Beach árið 2016. Hún biðst afsökunar á tengslum sínum við kynferðisafbrotamanninn alræmda en hún er nefnd á nafn nokkur hundruð sinnum í Epstein-skjölunum svokölluðu. Konungur Dana er einnig nefndur í skjölunum og prinsessa Svíþjóðar. 31. janúar 2026 13:46 Mest lesið Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent „Ætlum að sækja að olíufélaginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ Innlent Krefst sýknu í öllum ákæruliðum: „Hún ætlaði aldrei að snúa aftur“ Innlent Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni Innlent „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Innlent Níu í haldi fyrir að smygla yfir hundrað kílóum af kókaíni í sjókistu Innlent Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Innlent Gómaður með tæp sextíu kíló af amfetamíni og „bleikt kókaín“ Innlent „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent Fleiri fréttir Börn sem fæðast í Bandaríkjunum áfram talin bandarísk Mega banna trans konum að stunda keppnisíþróttir Úkraínskur auðkýfingur særðist í sprengjutilræði í Mónakó Reiðin magnast í Venesúela Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Sjá meira
Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Norskir fjölmiðlar hafa í morgun birt myndir af Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú Íslands, með þeim Mette-Marit, norskri krónprinsessu, og Ghislaine Maxwell, fyrrverandi aðstoðarkonu og um tíma kærustu Jeffreys Epstein. 6. febrúar 2026 11:34
„Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ spyr fréttastjóri hjá Aftenposten í samnefndri grein sem birtist í dag. Birting tölvupóstasamskipta hennar og barnaníðingsins Jeffrey Epstein á dögunum bætir gráu ofan á svart hvað stöðu hennar innan konungsfjölskyldunnar varðar. 1. febrúar 2026 18:30
Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein Norska krónprinsessan Mette-Marit viðurkennir að hafa dvalið á heimili Jeffreys Epstein í Palm Beach árið 2016. Hún biðst afsökunar á tengslum sínum við kynferðisafbrotamanninn alræmda en hún er nefnd á nafn nokkur hundruð sinnum í Epstein-skjölunum svokölluðu. Konungur Dana er einnig nefndur í skjölunum og prinsessa Svíþjóðar. 31. janúar 2026 13:46