Snoop Dogg sagður fá 61 milljón króna í laun á dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. febrúar 2026 12:32 Bandaríski rapparinn Snoop Dogg reynir fyrir sér í krullu. Getty/Andrew Milligan Bandaríski rapparinn og skemmtikrafturinn Snoop Dogg er staddur á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu þar sem hann er „aðalpeppari“ bandaríska landsliðsins, svokallaður heiðursþjálfari liðsins.
Þangað er hann kominn til að hvetja bandarísku stjörnurnar sem ætla að reyna að vinna til verðlauna á leikunum. Hinn raunverulegi sigurvegari Ólympíuleikanna er kannski bara Snoop Dogg. Fréttir hafa borist af því hversu góð laun Snoop Dogg fær til að vera á Ólympíuleikunum. Alveg eins og á sumarleikunum í París 2024 þá er Snoop Dogg sagður vera að fá fimm hundruð þúsund Bandaríkjadali í laun fyrir hvern dag á leikunum, sem meira en 61 milljón króna inn á bankabókina á dag. Viðvera Snoop Dogg á leikunum í París vakti mikla athygli og ekki síst í íþróttagreinum sem eru ekki alltaf í sviðsljósinu. Rapparinn heimsótti ekki bara frægasta íþróttafólkið heldur fékk einnig að reyna sig í íþróttum sem sjaldan fá mikla athygli í Bandaríkjunum. Snoop Dogg having the time of his life at the Winter Olympics 🤣❄️ pic.twitter.com/Hwa2t23HBr— GiveMeSport (@GiveMeSport) February 6, 2026 Nú er Snoop Dogg kominn til Mílanó og tilbúinn að endurtaka leikinn. Hinn 54 ára gamli rappari verður heiðursþjálfari bandaríska liðsins á bæði Vetrarólympíuleikunum og Ólympíumóti fatlaðra. „Snoop er þekktur fyrir ástríðu sína fyrir samfélaginu, leiðsögn og að lyfta ungu fólki upp. Hann mun leggja til sinn einkennandi húmor og hjartahlýju til að hvetja íþróttafólk bandaríska liðsins á leið þess til Vetrarólympíuleikanna og Ólympíumóts fatlaðra í Mílanó Cortina 2026 og víðar,“ sagði talsmaður Ólympíu- og Ólympíumótsnefndar Bandaríkjanna (USOPC) um ráðninguna í desember síðastliðnum. What yall think?? How’d I do 🤣 @NBCOlympics pic.twitter.com/1W6mx3DmD1— Snoop Dogg (@SnoopDogg) February 5, 2026 Starfið er líklega ekki ódýrt heldur en Snoop þénaði samtals níu milljónir dollara í París að sögn NBC eða meira en milljarð í íslenskum krónum. Á sama tíma gaf þýski miðillinn Bild einnig í skyn að rapparinn gæti hafa þénað allt að fimmtán milljónir dollara þökk sé bónusi fyrir sjónvarpsáhorf. Rapparinn fær nefnilega einnig bónusa takist honum vel upp við að auka áhorf á keppnisviðburði á leikunum. NBC veðjar á að vinsældir Snoop Dogg skili sér til baka í áhorfi og auglýsingatekjum. Nákvæm þóknun hans fyrir leikana í Mílanó hefur ekki verið gefin upp, en líklegt er að honum verði greitt nokkurn veginn það sama fyrir átján daga sína á Ítalíu. Þótt kostnaðurinn við að hafa Snoop á Vetrarólympíuleikunum sé ekki lítill vonast USOPC líklega til þess að nærvera hans muni laða að yngri áhorfendur með memum og myndböndum. Og hann hefur greinilega ekki sóað neinum tíma við að hefjast handa, þar sem „Snoop þjálfari“ hefur þegar deilt myndbandi af sjálfum sér á samfélagsmiðlum þar sem hann reynir að renna sér á sleða, með litlum árangri. Maður getur aðeins ímyndað sér hvers konar uppátækjum hann mun taka þátt í á næstu vikum. View this post on Instagram A post shared by NewsTigo (@newstigo)
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Krulla Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Fótbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fótbolti Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Íslenski boltinn Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Fótbolti Besta frjálsíþróttafólk heims mætist í nýju móti Sport Fleiri fréttir „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Besta frjálsíþróttafólk heims mætist í nýju móti Yfir hundrað þúsund áhorfendur mættu á NFL-leik í Ástralíu ÍBV samdi við bandarískan hermann Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Dagskráin í dag: Golf, Formúla og Hollywood Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Sjá meira