Glæpamenn í fjarvinnu Rakel Sveinsdóttir skrifar 13. febrúar 2026 07:00 Tæknin er svo sannarlega búin að opna margar dyr síðustu misseri fyrir atvinnulífið um allan heim. En það á ekki aðeins við um almenna vinnumarkaðinn. Heldur líka glæpastarfsemi sem þrífst sem aldrei fyrr. Meðal annars í fjarvinnu. Vísir/Getty Það hefur verið ótrúlega gaman að fylgjast með þróun atvinnulífsins síðustu misseri þar sem tæknin er svo sannarlega að opna margar nýjar dyr.
Ekki síst fjarvinnan, sem sérstaklega eftir Covid varð að veruleika margra víða um heim, hvort heldur sem er alfarið eða sem vinnufyrirkomulag að hluta. Að starfa í fjarvinnu er þó ekki aðeins að opna margar nýjar dyr fyrir hinn almenna vinnumarkað heldur líka fyrir glæpastarfsemi. Í frétt Vísis í vikunni sagði Kolbrún Benediktsdóttir, sendisaksóknari hjá Eurojust, til dæmis: Með netinu og breyttri heimsmynd er þetta mjög einfalt. Menn koma sér fyrir þar sem er best fyrir þá að vera og geta svo stýrt þessu með tækninni.“ Fréttin tengdist umfangsmiklu máli sem Vísir og aðrir fjölmiðlar hafa verið að segja frá, um fíkniefnasölu og aðra glæpi sem teygja anga sína víða um heim, allt frá Suður-Ameríku inn á ganga Litla Hrauns á Íslandi. Að tæknin sé að nýtast glæpastarfsemi vel er svo sem nokkuð kunnugt. Sala á fíkniefnum og vændi hefur til dæmis lengi verið iðkuð á samfélagsmiðlum. Samskiptaforritin sem eru hvað mest notuð af glæpahópum eru samkvæmt Europol forritin Signal og Telagram. Hvorugt mjög þekkt á Íslandi. Telegram þó þekktari. Enda stofnandi Telegram stundum í fréttum fjölmiðla. Hinn fertugi Durov frá Rússlandi, sem reyndar býr í sjálfskipaðri útlegð í Dúbaí. Nú síðast í gær sagði í frétt á Vísi að Pútín væri að amast eitthvað við Telagram. Því í Rússlandi er Telegram einfaldlega vinsælasti samfélagsmiðillinn. Í frétt gærdagsins sagði þó að fleiri en Rússar eru óhressir með Telegram: Vestræn ríki hafa einnig átt sökótt við Telegram. Pavlov var sóttur til saka í Frakklandi fyrir að neita að vinna með löggæsluyfirvöldum sem rannsökuðu barnaníðsefni, fíkniefnasmygl og fjársvik á Telegram. Honum var þó leyft að fara aftur heim til Dúbaí í fyrra þótt málið væri enn í gangi. Signal hentar glæpahópum líka mjög vel. En það forrit býður upp á dulkóðuð skilaboð og símtöl sem erfitt er að rekja. Í fréttamáli vikunnar kom fram að peningaþvætti fyrir hagnað af fíkniefnasölu frá Suður-Ameríku til Evrópu færi fram í gegnum fasteignir í Litháen. Oft eru þó Bitcoin og Monero notuð sem greiðslur og fyrir peningaþvætti. Bitcoin er okkur Íslendingum þekktara en Monero, en munurinn er sá að Monero er nánast órekjanleg rafmynt. Upp á síðkastið hafa íslenskir fjölmiðlar líka rætt í auknum mæli um netglæpi alls konar, sem gera má ráð fyrir að muni aukast töluvert í fréttum. Ekki aðeins vegna þess að íslensk fyrirtæki eru að verða fyrir þeim, heldur er þetta iðnaður sem er einfaldlega svo vaxandi. Í viðtali við Atvinnulífið sagði Anton Egilsson, forstjóri Syndis, til dæmis að iðnaðurinn væri orðinn svo stór að netglæpir teljast nú stærri en fíkniefnaiðnaður heimsins. Og kannski ekki nema von. Því netglæpi er hægt að stunda alls staðar frá. Varla betri vettvangur fyrir starf í fjarvinnu. Nú þegar gervigreindin bætist við má líka búast við því að glæpastarfseminni vaxi enn ásmegin. Ekki síst í fjarvinnu þar sem búseta getur verið í hvaða paradís sem hver og einn velur sér; með gervigreindinni er líka hægt að falsa hvað sem er og fá aðstoð við að besta nánast hvaða verkefni sem er. Að atvinnulífið sé að taka stakkaskiptum er því svo sannarlega ekki ofsögum sagt. Og í þetta sinn erum við ekki aðeins að tala um hakkarana sem sitja við tölvurnar. Heldur einfaldlega fólk sem skipuleggur vinnuna sína nánast eins og hefðbundna skrifstofu- eða stjórnunarvinnu. Í fjarvinnu. En nýtir sér tæknina til að eflast, hagræða og opna nýjar dyr. Sem dæmi má benda á viðvörun Europol frá í fyrra. Þar sem fram kemur að ekki aðeins sé gervigreindin að nýtast glæpahópum vel til að framkvæma svik eða fjölga tækifærum til glæpa, heldur er gervigreindin einfaldlega að gefa glæpahópum tækifæri til að stækka rekstur sinn hraðar og ódýrar en nokkru sinni fyrr.
Fjarvinna Tækni Tengdar fréttir „Við getum fengið Boga Ágústs til að gera og segja hvað sem er“ Við höfum ákveðna ímynd af hökkurum úr sjónvarpinu. Sem reyndar á ekki að skrifa sem hakkari, heldur hjakkari að sögn Gyðu Bjarkardóttur hjakkara og hugbúnaðarprófara. 19. maí 2025 07:00 Mögulega búið að hakka sig inn á Teams samskiptin þín og fleira „Ég hef alveg mætt í fyrirtæki, kallaður út á laugardegi. Þar sem bíða mín 50 starfsmenn og mér réttur tússpenni og tafla og fólk spyr: Hvað eigum við að gera?" segir Valdimar Óskarsson, framkvæmdastjóri Keystrike. 26. febrúar 2025 07:01 Á mannamáli: „Ég er bara einhver „nobody,“ við erum ekki með nein gögn“ „Ég heyri stundum þarna úti: Nei ég er bara einhver „nobody,“ við erum ekki með nein gögn,“ segir Anton Egilsson forstjóri Syndis. 28. ágúst 2024 07:01 „Klárum þetta með góðu partíi heima hjá mér í kvöld“ Jeminn hugsa örugglega margir. Við tilhugsunina um að mögulega geti gervigreindin séð um að taka fundi fyrir okkur á meðan við skellum okkur í golf. 26. október 2025 08:02 Mannauðsmál lögreglunnar: Ljótu málin taka á „Það eru auðvitað þessi ofbeldismál og stóru erfiðu mál sem valda álagi, sérstaklega á lögreglumenn sem eru á vaktinni,“ segir Sigurveig Helga Jónsdóttir mannauðsstjóri Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu (LRH). 22. maí 2025 07:00 Mest lesið Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Sveru dósirnar snúa aftur Neytendur Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Viðskipti erlent ChatGPT virkar á ný Viðskipti erlent Komin með ný nöfn Viðskipti innlent Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaflaskil í vinnu: Hver er ég eftir uppsögn? Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið 50+ konur eru framtíðin fyrir gjörbreyttan vinnumarkað Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Sjá meira
„Við getum fengið Boga Ágústs til að gera og segja hvað sem er“ Við höfum ákveðna ímynd af hökkurum úr sjónvarpinu. Sem reyndar á ekki að skrifa sem hakkari, heldur hjakkari að sögn Gyðu Bjarkardóttur hjakkara og hugbúnaðarprófara. 19. maí 2025 07:00
Mögulega búið að hakka sig inn á Teams samskiptin þín og fleira „Ég hef alveg mætt í fyrirtæki, kallaður út á laugardegi. Þar sem bíða mín 50 starfsmenn og mér réttur tússpenni og tafla og fólk spyr: Hvað eigum við að gera?" segir Valdimar Óskarsson, framkvæmdastjóri Keystrike. 26. febrúar 2025 07:01
Á mannamáli: „Ég er bara einhver „nobody,“ við erum ekki með nein gögn“ „Ég heyri stundum þarna úti: Nei ég er bara einhver „nobody,“ við erum ekki með nein gögn,“ segir Anton Egilsson forstjóri Syndis. 28. ágúst 2024 07:01
„Klárum þetta með góðu partíi heima hjá mér í kvöld“ Jeminn hugsa örugglega margir. Við tilhugsunina um að mögulega geti gervigreindin séð um að taka fundi fyrir okkur á meðan við skellum okkur í golf. 26. október 2025 08:02
Mannauðsmál lögreglunnar: Ljótu málin taka á „Það eru auðvitað þessi ofbeldismál og stóru erfiðu mál sem valda álagi, sérstaklega á lögreglumenn sem eru á vaktinni,“ segir Sigurveig Helga Jónsdóttir mannauðsstjóri Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu (LRH). 22. maí 2025 07:00