Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Árni Sæberg skrifar 12. febrúar 2026 16:04 Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í málinu. Vísir/Vilhelm Kona hefur verið dæmd til þess að greiða fyrrverandi sambýlismanni sínum tæpar þrettán milljónir króna vegna sambúðarslita þeirra. Fyrir dómi sagði hún manninn hafa verið „tekjulausan iðjuleysingja og drykkjumann“, sem hún hefði haldið uppi allan sambúðartímann. Málið sneri að gildi fjárskiptasamnings þeirra á milli en konan hélt því fram að samningurinn væri ógildur þar sem strikað hafði verið yfir ákvæði um skyldu mannsins til þess að reyna að frjóvga egg hennar í eitt ár eftir sambúðarslitin.
Þetta kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjaness, sem kveðinn var upp þann 5. febrúar og birtur í dag. Í honum er málsatvikum lýst þannig að fólkið hafi verið í sambúð um nokkurra ára skeið frá árinu 2013 og eigi saman eitt barn. „Stefnda segir að er hún og stefnandi hafi kynnst hafi stefnandi verið að missa húsnæði sitt en hann hafi um margra ára skeið verið tekjulaus iðjuleysingi og drykkjumaður, sem stefnda hafi haldið uppi allan sambúðartímann, en hún hafi haft góðar tekjur og allt aflafé hennar hafi runnið til heimilisins.“ Keypti fasteign og félag Árið 2014 hafi konan keypt fasteign fyrir 41 milljón króna, hún hafi greitt kaupsamningsgreiðslu upp á 6,5 milljónir en kaupverðið að öðru leyti fjármagnað með láni með veði í fasteigninni. Farið hafi verið í umtalsverðar framkvæmdir, meðal annars við að útbúa útleiguíbúðir í fasteigninni, sem hafi verið unnar af manninum og manna á hans vegum. Þá hafi konan keypt einkahlutafélag árið 2017, sem hafi átt atvinnuhúsnæði sem maðurinn breytti í íbúðarhúsnæði. Þar hafi þau búið saman frá árinu 2017 til sambúðarslita. Harla óvenjulegur samningur Þá segir að í málinu liggi fyrir ljósrit samkomulags fólksins um fjárskipti vegna sam-búðarslita, undirritað í mars 2021, en ágreiningur þess hverfist meðal annars um það hvort það samkomulag sé í gildi. Samkvæmt samningnum skuli ofangreindum eignum skipt til helminga en þó með nánar tilgreindum skilyrðum, meðal annars að konan skuli hirða 12 milljónir króna af hreinni eign fyrir skiptin. Þá segir eftirfarandi í samkomulaginu: „Þrátt fyrir að sambúðarslit séu skv. þessu yfirvofandi, munu aðilar reyna eftir fremsta megni að eignast annað barn saman, að lágmarki næstu 12 mánuði frá þessu samkomulagi. skuldbindur [maðurinn] sig til að reyna að frjóvga egg [konunnar] þegar [konan] er með egglos, 5 daga í mánuði x 12 mánuði. Ef ekki liggja fyrir öruggar sannanir um að [konan] sé með barni eftir 12 mánuði, þá skuldbindur [maðurinn] sig til, ef [konan] óskar eftir því, sæði úr sér til tæknifrjóvgunar. Samkomulag er um að hvor aðili geti ekki gert nokkrar fjárkröfur á hinn vegna tæknifrjóvgunarmeðferðarinnar, s.s. lækniskostnað og slík gjöld hverju sem þau nefnast. [Konan] fellur frá meðlagsgreiðslum frá [manninum], með nýbura.“ Strikað yfir ákvæðið en maðurinn til í tæknifrjóvgun Konan byggði sýknukröfu sína á því að strikað hefði verið yfir ofangreind ákvæði um barneignir án vitundar hennar og samningurinn í heild væri því ógildur. Í dóminum segir að miðað við framburð fólksins og gögn málsins liggi ekki fyrir með óyggjandi hætti hvernig yfirstrikun ákvæðanna kom til og konan því ekki sýnt fram á að það hafi verið gert án hennar vitundar eða vilja. Þá bendi eftirfarandi atvik og samskipti fólksins ekki til þess að konan hafi litið svo á að samkomulagið hefði ekki gildi. Konan hafi sagst fyrir dómi hafa talið að maðurinn væri bundinn við ákvæðið og miðað við samskipti þeirra varðandi það, sem væru til, um að hann kæmi með henni í tæknifrjóvgun á Spáni, hlyti hann einnig að hafa talið að svo væri. Þessi samskipti hafi ekki verið lögð fram í málinu en ekki verði annað ráðið af framburðum fólksins en að þrátt fyrir yfirstrikunina hafi maðurinn verið tilbúinn til að standa við að fara með konunni í tæknifrjóvgun á Spáni, enda hafi hann borið fyrir dómi að konan hefði óskað eftir þessu við sig. Því verði ekki séð hvernig yfirstrikunin hafi átt að valda ógildi samkomulagsins. Með vísan til þessa og atvika málsins almennt var fallist á kröfu mannsins um greiðslu 12,6 milljóna króna. Þá var konunni gert að greiða manninum 800 þúsund krónur í málskostnað.
Fjölskyldumál Dómsmál Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Sjá meira