Féll allt að tuttugu metra við foss á Snæfellsnesi Freyja Þórisdóttir skrifar 13. febrúar 2026 14:51 Mynd af Vatnaleið af vefsíðu Vegagerðarinnar. Vegagerðin Erlendur ferðamaður sem féll tæpa tuttugu metra við foss nærri Selvallavatni á Snæfellsnesi var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur. Þrátt fyrir hátt fall var maðurinn með meðvitund.
Útkall vegna slyssins barst Neyðarlínunni á þriðja tímanum í dag og voru bæði björgunarsveitir frá Grundarfirði og Stykkishólmi kallaðar út. Lögreglan kom einnig að málinu. Slysið varð á Vatnaleið sem liggur þvert yfir Snæfellsnes en þyrla Landhelgisgæslunnar sem var í æfingaflugi var látin sækja lækni og koma með á vettvang. Þyrlan flutti svo manninn til Reykjavíkur á fimmta tímanum. Ásmundur Kristinn Ásmundsson aðstoðaryfirlögregluþjónn á Vesturlandi segir í samtali við fréttastofu að maðurinn hafi verið með meðvitund þegar viðbragðsaðila bar að. Ekki liggur fyrir um hversu alvarleg meiðsli mannsin eru. Ferðamaðurinn hafi verið á göngu skammt frá útsýnispalli yfir Selvallavatni. Ásmundur segir göngustíginn hafa verið hálan, ferðamaðurinn runnið og fallið niður það sem lögreglumenn á vettvangi töldu vera um 15-20 metra. Ásmundur ítrekar að mun betur hafi farið en á horfðist þegar útkallið barst. Þessu megi meðal annars þakka því að ferðamaðurinn hafi lent á bakkanum en ekki úti í ánni. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir að öllum aðgerðum á svæðinu sé lokið. Fréttin hefur verið uppfærð.
Björgunarsveitir Stykkishólmur Ferðaþjónusta Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fleiri fréttir Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Sjá meira