Nýjar áskriftarleiðir að Heimavörn bylting á öryggismarkaði Securitas 13. febrúar 2026 15:36 Hægt er að stýra Heimavörn með símanum í þægilegu appi á íslensku. Kerfið er beintengt við mannaða stjórnstöð Securitas sem er á vaktinni allan sólarhringinn. Nýjar áskriftarleiðir að Heimavörn bjóðast nú hjá Securitas, heildstætt öryggiskerfi sem tengir heimili beint við stjórnstöð Securitas allan sólarhringinn, alla daga ársins. Nína Louise Auðardóttir, markaðsstjóri Securitas segir þjónustuna marka tímamót í öryggismálum þegar kemur að þjónustu og verði. „
Við vitum að þarfir heimila eru ólíkar og þess vegna viljum við bjóða upp á lausnir og verð sem endurspegla það. Áður var Heimavörn einkum lausn fyrir sérbýli en með þessum breytingum höfum við gerbreytt því hvernig viðskiptavinir geta nálgast öryggiskerfi og gert það aðgengilegt öllum gerðum heimila,“ segir Nína. Sigríður Ýr Aradóttir vörustjóri Securitas og og Nína Auðardóttir markaðsstjóri Securitas Í boði eru mismunandi útgáfur af Heimavörn þar sem mismikill búnaður og þjónusta er innifalin; Heimavörn LÉTT, SNJÖLL og PREMIUM. Auðvelt er að sækja sér ráðgjöf og svör við helstu spurningum á heimavorn.is þar sem hægt er í nokkrum einföldum skrefum að finna hvaða lausn hentar best til að gera heimilið öruggara. Tæknifólk Securitas mæta þegar viðskiptavinum hentar og setja upp heimastjórnstöð, skynjara og annan búnað, auk vöktunarmiða. „Þá er allt klárt og hægt að byrja að stýra Heimavörn með símanum í þægilegu appi á íslensku,“ segir Sigríður Ýr Aradóttir vörustjóri Securitas og bætir við að það skiptir sköpum að kerfið er beintengt við mannaða stjórnstöð Securitas sem er á vaktinni allan sólarhringinn. Svo mikilvægt að einhver bregðist við þegar kallið kemur Heimavörn byggir á því að tryggja að ekki sé aðeins verið að fylgjast með heldur einnig að brugðist sé hratt og örugglega við ef búnaðurinn nemur vatnsleka, reyk eða óboðna gesti. „Reynslan sýnir að snör viðbrögð þjálfaðs fagsfólks geti afstýrt eða lágmarkað tjón. Það er einmitt það sem kristallar kosti Heimavarnar,“ segir Sigríður og bendir á að ef fólk er ekki heima eða statt erlendis og eitthvað kemur uppá þá sé engin leið fyrir fólkið að bregðast við þó það geti séð myndavélaupptökur í símanum sínum. „Vöktunin frá okkur gerir fólki kleift að fara öruggt út af heimilinu og veitir því hugarró að vita að ef eitthvað skyldi gerast þá er strax brugðist við.“ Gleymdi einhver lyklinum og hvað er hundurinn að brasa? Heimavörn er ekki eingöngu öryggisvörn heldur er hægt að bæta við búnaði sem léttir fólki lífið. Nína nefnir til dæmis Lyklavaktina og Dyravaktina í heimavarnar-appinu „Það er til dæmis hægt að hleypa krökkunum inn þegar þau koma heim úr skólanum og jafnvel óþarfi að öll fjölskyldan sé með lykla sem geta bara týnst. Með Dyravaktinni er hægt að opna dyrnar í gegnum símann þegar dyrabjöllunni er hringt, til dæmis ef gestirnir mæta áður en þú ert komin heim eða ef þarf að hleypa iðnaðarmönnum inn eða taka á móti sendingum. Það getur verið þægilegt að sjá hvað hundurinn er að brasa á daginn þegar hann er einn heima eða séð hvort börnin komu með alla vinina heim eftir skóla. Allar þessar lausnir byggja á öruggum tæknibúnaði á heimsmælikvarða og áratuga reynslu Securitas,“ segir Nína. Einfalt að klára málið á netinu Þróunin í tæknilegum lausnum í öryggismálum fyrir heimili hefur verið afar hröð undanfarin ár. Nína og Sigríður hvetja fólk til að fylgjast vel með og vera vakandi fyrir bestu mögulegu leiðum til að vernda heimilið. „Þess vegna er gott að vita að nú er hægt að nálgast alla ráðgjöf Securitas beint á netinu og velja þá útgáfu sem hentar best,“ segir Sigríður. „Enginn staður í öllum heiminum skiptir okkur meira máli en heimilið og saman gerum við mikilvægasta staðinn í veröldinni öruggari,“ segir Nína.
Hús og heimili Mest lesið Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Neytendur Kínverjarnir selja sig út úr Elkem Viðskipti innlent Selja sérbakaðar bollur í útivistarvöruverslun Viðskipti innlent Gera Wolt-sendla starfsmenn en á óhefðbundnum kjörum Viðskipti erlent Glæpamenn í fjarvinnu Atvinnulíf Valhöll seld en óvíst með framhaldið Viðskipti innlent Neita að taka fyrir umsókn um nýja kynslóð flensusprautu Viðskipti erlent Kóngulóarsilki, Heilsuvera fyrir dýr og Ókind keppast um Gulleggið Viðskipti Bræður selja Vagna og þjónustu eftir 40 ára rekstur Viðskipti innlent Nýjar áskriftarleiðir að Heimavörn bylting á öryggismarkaði Samstarf Fleiri fréttir Nýjar áskriftarleiðir að Heimavörn bylting á öryggismarkaði Hreingerningafyrirtæki brýtur blað í fræðslumálum Hjálpar skiptastjórum að greina eignaundanskot Bestu íslensku vörumerkin 2025: viðurkenningarhátíð í Hörpu Margborgar sig að gera við stjörnu í rúðu: Carglass hefur opnað á Íslandi Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Forsteyptar húseiningar einfalda byggingarferlið Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Opið fyrir innsendingar í Lúðurinn 2025 Greiðsluáskorun Gjöfult samstarf Arion banka og íslenska karlalandsliðsins í yfir tuttugu ár Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Sjá meira