Utan vallar: Karl, trans eða einfaldlega kona? Valur Páll Eiríksson skrifar 15. febrúar 2026 08:01 Imane Khelif varð fyrir miklu aðkasti og var sökuð um að vera karlmaður á Ólympíuleikunum í París. Sú umræða hefur sprottið upp reglulega síðan, nú síðast í liðinni viku. RvS.Media/Robert Hradil/Getty Images Margur fagnaði sigri hrósandi þegar hnefaleikakonan Imane Khelif viðurkenndi í viðtali á dögunum að hún væri með hátt testósterón magn. Hún væri þar af leiðandi að viðurkenna að hún væri í raun karl. Sú er ekki raunin og staðreyndavillur eru enn ríkjandi í umræðu um þátttöku intersex kvenna í íþróttum.
Khelif sagði í viðtali nýlega að hún hefði greinst með hátt magn karlhormóna í líkama sínum. Í kjölfarið fór af stað mikil bylgja á netinu, líkt og gerðist á Ólympíuleikunum árið 2024, um að þarna væri karl á ferðinni. Nú væri komin staðfesting á því. 🚨Algerian Olympic Boxer Imane Khelif has admitted to having male sex chromosomes.In an interview with French sports outlet L’Equipe, Khelif confirmed he has the SRY gene carried on a Y chromosome. https://t.co/ktgz1U2NNv— REDUXX (@reduxx) February 5, 2026 Khelif sagðist í viðtalinu hafa neyðst til að taka hormónabælandi lyf í aðdraganda Ólympíuleikanna árið 2024. Hún er með svokallað SRY gen, sem er á Y-litningi, sem tengist yfirleitt kynþroska karla og veldur háu testósterón magni. „Þetta er náttúrulegt. Þessi frávik eru náttúruleg, þau eru það sem ég er. Ég gerði ekkert til að breyta því hvernig ég er náttúrulega,“ segir Khelif í viðtalinu. Hún raunar gerði það þó, að breyta sér náttúrulega. En ekki til að hækka testósterón magn – heldur lækka það. Hún tók hormónabælandi lyf fyrir undankeppni Ólympíuleikanna samkvæmt viðtalinu, í samráði við lækna. Sú meðferð hafi haft áhrif á líkamsstarfsemina. „Það tekur þig úr jafnvægi. Ég grét mikið, þetta ruglar í tilfinningunum, sérstaklega þegar maður er að losa sig við kíló fyrir vigtun.“ Caster Semenya, Ólympíumeistari í millivegalengdarhlaupum, er líkt og Khelif á intersex-skalanum – það sem kallað er DSD (differences of sex development). Það er ákveðið misræmi í þroska litninga, kynkirtla eða kynfæra – sem getur haft í för með sér eins breytilega eiginleika og einkenni eins og fólk er margt. Þar er um að ræða líffræðilega þróun fósturs sem skilar sér með ákveðnum hætti við fæðingu og hefur ekkert með t.d. trans fólk að gera. Litningafræðingar geta eflaust farið dýpra í skilgreiningar á DSD en líkt og áður segir eru afleiðingar slíks breytilegar hvað hormón og kynfæri varðar. Samkvæmt rannsóknum er á bilinu einn af hverjum 1.000 til 4.500 einstaklingum með DSD. Margir hverjir vita ekki af því alla sína ævi að þeir séu með DSD. Enda fæstir skikkaðir í testósterón mælingar vegna starfs síns. Þær Semenya og Khelif fóru þó í slíkar mælingar og eru því ekki með hefðbundna hormónastarfsemi, en fæðast þó sem konur. Þær eru með leg, leggöng og eggjastokka. Semenya var neydd af Alþjóðaólympíunefndinni til að lækka sitt testósterón magn hygðist hún keppa áfram í 800 og 1.500 metra hlaupum. Mál hennar varð heimsfrægt og endaði fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu, sem dæmdi Semenya í hag. Þrátt fyrir það hafa reglur um lækkun testósteróns náð sterkari fótfestu í heimi íþrótta undanfarin misseri og umræðan um konur með hátt testósterón magn verið bæði hatrömm og full af staðreyndavillum – sérstaklega þar sem slíkar konur eru í mörgum tilfellum ranglega sagðar karlar eða trans konur. Það er einfaldlega ekki rétt. Þessi umræða birtist skýrt í kringum Khelif líkt og þrætt var hér eftir að hún vann sigur á hinni ítölsku Angelu Carini á Ólympíuleikunum fyrir tveimur árum síðan. Mektarfólk fussaði og sveiaði yfir því að karl væri að berja konu á Ólympíuleikum og úr varð heljarinnar grautur staðreyndavilla. Staðreyndagrautur sem er enn verið að hræra í allar áttir í dag. Þrátt fyrir viðtal Khelif á dögunum er enn jafn skýrt þá og nú að þarna er um konu að ræða. Ekki karl. Ekki trans konu. Khelif er þá heldur ekki ósigrandi. Hún hefur unnið 48 bardaga og tapað níu á sínum ferli. Auðvitað þarf að huga að samkeppnisforskoti, sanngirni í keppni og sér í lagi, þegar kemur að hnefaleikum, öryggi keppenda. Það eru þó margir aðrir þættir, meðfæddir eða varðandi aðstöðu, sem geta veitt jafn mikið ef ekki meira forskot í keppni heldur testósterón magn. Testósterón magn er jafnvel breytilegra innan hvors kyns fyrir sig, en að jafnaði þar á milli. Það hefur almennt ekki úrslitaákvæði um getu í íþróttum eitt og sér, þó það séu tengsl þar á milli. Eftir standa enn spurningar um hvaða leið sé best að fara hvað þetta varðar. Hvar eigi að koma konum með hátt testósterón magn fyrir og hvort sé réttlætanlegt að neyða þær í hormónameðferðir sem fari gegn þeirra náttúruleika, og getur haft slæmar afleiðingar á þeirra heilsu. Vangaveltur um hvar eigi að koma trans konum fyrir er svo allt önnur umræða. Sem þarf að byggja á staðreyndum. Sú umræða kemur hins vegar konunni Imane Khelif nákvæmlega ekki neitt við.
Utan vallar Box Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Fleiri fréttir Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Er skrefareglan dauð í NBA? Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Dagskráin: Skiptiborðið, stórleikur í körfunni og Íslendingar í Evrópu Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ „Þetta er bara einn leikur í einu“ Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Fór út í bíl og náði í byssu Messi klæddist Como-treyju Skagamenn á vergangi og af hverju skrifa fótboltamenn ekki á íslensku? Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Sjá meira