Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri Samúel Karl Ólason skrifar 14. febrúar 2026 14:59 Alexei Navalní í Rússlandi árið 2019. AP/Alexander Zemlianichenko Eitrað var fyrir Alexei Navalní helsta andstæðingi Vladímírs Pútín Rússlandsforseta með froskaeitri. Þetta segja yfirvöld í Bretlandi en eitur þetta mun bera nafnið epibatidine og mun það hafa fundist í sýnum sem tekin voru af líki Navalní, eftir að hann lést í fanganýlendu í Rússlandi fyrir um tveimur árum.
Breska ríkisútvarpið hefur eftir utanríkisráðuneyti Bretlands að engar eðlilegar útskýringar geti verið fyrir því að eitrið hafi fundist á og í líki Navalnís. Þá sagði Yvette Cooper, utanríkisráðherra, í morgun að einungis yfirvöld í Rússlandi hefðu bæði getu og tilefni til að eitra fyrir Navalní í fanganýlendunni í Rússlandi. Júlía Navalní, eiginkona Alexeis, hélt því fram í fyrra að eitrað hefði verið fyrir eiginmanni hennar. Hún sagði þó ekki hvaða eitur hafi verið notað. Yfirvöld í Svíþjóð, Frakklandi, Hollandi og Þýskalandi, hafa einnig haldið þessu fram. Eins og frægt er dó Navalní í fangelsi í Rússlandi. Hann hafði þá setið í fangelsi frá árinu 2021, þegar hann hlaut tveggja og hálfs árs dóm fyrir að rjúfa skilorð vegna dóms frá 2014, sem Mannréttindadómstóll Evrópu hefur sagt gerræðislegan. Ástæða þess að hann braut skilorðið var þó sú að eitrað hafði verið fyrir honum og hann lá við dauðans dyr á sjúkrahúsi í Þýskalandi. Navalní sakar Vladimír Pútin, forseta Rússlands, um að bera ábyrgð á eitruninni en notast var við taugaeitrið Novichok, sem einnig var notað til að eitra fyrir fyrrverandi njósnaranum Sergei Skripal og dóttur hans. Þrátt fyrir að eitrað hafi verið fyrir honum sneri Navalní aftur til Rússlands og var hann handtekinn strax eftir lendingu. Þegar hann dó hafði hann farið í göngutúr í fanganýlendunni sem er í norðanverðri Síberíu. Eftir göngutúrinn missti hann meðvitund og vaknaði aldrei aftur. Nokkrum dögum síðar heiðraði Vladimír Pútín, forseti Rússlands, fangelsismálastjóra Rússlands og hækkaði hann í tign. Um þetta leyti var unnið að umfangsmiklum fangaskiptum milli Bandaríkjamanna og Rússa og vildu þeir fyrrnefndu að Navalní yrði frelsaður í þeim fangaskiptum. Um var að ræða umfangsmestu fangaskipti á milli Rússlands og vestrænna ríkja frá lokum kalda stríðsins. Sextán fangar í rússneskum fangelsum fengu þá frelsi í skiptum fyrir átta Rússa sem sátu í fangelsum í Bandaríkjunum og Evrópu.
Rússland Mál Alexei Navalní Vladimír Pútín Tengdar fréttir Pútín sagður beina kúgunartækjum sínum að eigin stuðningsmönnum Hreinsanir innan raða stuðningsmanna Vladímírs Pútín Rússlandsforseta eru sagðar hafnar. Þær eru sagðar endurspegla valdabaráttu ólíkra fylkinga þeirra sem styðja forsetann. 6. nóvember 2025 11:55 Refsivert að leita að ævisögu Navalní á netinu í Rússlandi Rússar sem leita að ævisögu Alexei Navalní heitins, úkraínskum fréttasíðum eða ákveðnum lagatextum geta átt von á fésekt eftir að ný lög um „öfgakennt efni“ tóku gildi. Ævisaga Navalní er þar felld í sama flokk og áróðursrit Adolfs Hitler. 1. september 2025 08:57 Ekkja Navalní mótmælir tónleikum „náins vinar“ Pútín Júlía Navalní, ekkja Alexei Navalní pólitísks andstæðings Vladimírs Pútín Rússlandsforseta, biðlar til ítalskra stjórnvalda að aflýsa tónleikum leiddum af rússneskum hljómsveitarstjórnanda sem er sagður nátengdur Pútín. 15. júlí 2025 15:20 Blaðamenn fangelsaðir vegna samstarfs við Navalní Fjórir rússneskir blaðamenn voru í dag dæmdir til fimm og hálfs árs fangelsisvistar fyrir samstarf sitt við stjórnarandstæðinginn Alexei Navalní. 15. apríl 2025 21:46 Taugaeitur til að drepa þúsundir manna skilið eftir á glámbekk Taugaeitrið sem rússneskir útsendarar höfðu komið fyrir í ilmvatnsflösku og skilið eftir á glámbekk í Bretlandi árið 2018, eftir að þeir reyndu að ráða njósnarann Sergei Skripal af dögum, var í nægjanlegu magni til að drepa þúsundir manna. Hin 44 gamla Dawn Sturgess dó eftir að hún sprautaði því sem hún hélt að væri ilmvatn á sig. 15. október 2024 08:01 Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Sjá meira
Pútín sagður beina kúgunartækjum sínum að eigin stuðningsmönnum Hreinsanir innan raða stuðningsmanna Vladímírs Pútín Rússlandsforseta eru sagðar hafnar. Þær eru sagðar endurspegla valdabaráttu ólíkra fylkinga þeirra sem styðja forsetann. 6. nóvember 2025 11:55
Refsivert að leita að ævisögu Navalní á netinu í Rússlandi Rússar sem leita að ævisögu Alexei Navalní heitins, úkraínskum fréttasíðum eða ákveðnum lagatextum geta átt von á fésekt eftir að ný lög um „öfgakennt efni“ tóku gildi. Ævisaga Navalní er þar felld í sama flokk og áróðursrit Adolfs Hitler. 1. september 2025 08:57
Ekkja Navalní mótmælir tónleikum „náins vinar“ Pútín Júlía Navalní, ekkja Alexei Navalní pólitísks andstæðings Vladimírs Pútín Rússlandsforseta, biðlar til ítalskra stjórnvalda að aflýsa tónleikum leiddum af rússneskum hljómsveitarstjórnanda sem er sagður nátengdur Pútín. 15. júlí 2025 15:20
Blaðamenn fangelsaðir vegna samstarfs við Navalní Fjórir rússneskir blaðamenn voru í dag dæmdir til fimm og hálfs árs fangelsisvistar fyrir samstarf sitt við stjórnarandstæðinginn Alexei Navalní. 15. apríl 2025 21:46
Taugaeitur til að drepa þúsundir manna skilið eftir á glámbekk Taugaeitrið sem rússneskir útsendarar höfðu komið fyrir í ilmvatnsflösku og skilið eftir á glámbekk í Bretlandi árið 2018, eftir að þeir reyndu að ráða njósnarann Sergei Skripal af dögum, var í nægjanlegu magni til að drepa þúsundir manna. Hin 44 gamla Dawn Sturgess dó eftir að hún sprautaði því sem hún hélt að væri ilmvatn á sig. 15. október 2024 08:01