Engin breyting þó veðmálakóngur sé einn eftir Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 18. febrúar 2026 06:48 Þröstur bendir á að hótelið sé vel á veg komið, líkt og glögglega má sjá á myndinni sem hann sendi fréttastofu af hótelinu til hægri. Sveitarstjóri Grýtubakkahrepps segist engar skoðanir hafa á nýjum eiganda að hundrað prósenta hluta í fimm stjörnu lúxushóteli sem er í uppbyggingu á Grenivík. Sá hafi áður átt hlut í verkefninu, engin eðlisbreyting hafi átt sér stað og telur sveitarstjórinn að bjartir tímar séu framundan með uppbyggingunni. „
Ég hef aldrei hitt manninn og veit ekkert um hann, hann er náttúrulega búinn að vera á bakvið verkefnið frá upphafi, þannig þetta er engin breyting þannig lagað séð, þarna er fjárfestingasjóður sem heldur utan um þetta og sveitarfélagið leigir lóð undir,“ segir Þröstur Friðfinnsson sveitarstjóri Grýtubakkahrepps í samtali við Vísi. Greint var frá því um helgina að breski veðmálajöfurinn Russ DeLeon hefði eignast hundrað prósenta hlut í fimm stjörnu hótelinu þann 2. febrúar. Hann átti áður 49,99 prósenta hlut á móti Björgvini Björgvinssyni og Jóhanni Hauki Hafstein. Þeir félagar sögðu við Vísi um helgina að viðskilnaðurinn hefði verið í góðu, tvímenningarnir hafi viljað einbeita sér að rekstri skíðaferðafyrirtækja sinna. DeLeon varð moldríkur af veðmálasíðunni PartyPoker.com sem hann stofnaði ásamt þáverandi eiginkonu sinni, Ruth Parasol, árið 2001. Árið 2005 rataði hann á lista Forbes yfir 400 ríkustu menn í Bandaríkjunum. Hann á lögheimili á Gíbraltar en hefur bandarískan ríkisborgararétt, þar sem hann nam lögfræði í Bandaríkjunum. „Það er í raun engin eðlisbreyting á framkvæmdinni. Húsið er risið og ég sé að herbergin standa tilbúin, þannig það er bara lokahnykkurinn sem er eftir,“ segir Þröstur. Tafir hafa orðið á opnun hótelsins en komið hefur fram að það eigi að opna einhvern tímann á þessu ári. Þetta verður mikil upplyfting fyrir sveitarfélagið þegar þetta opnar? „Við erum að reikna með því. Þetta verður fimmtíu manna vinnustaður í litlu samfélagi, það skiptir sköpum. Ég held að áhrifin geti svo orðið enn meiri en menn hafa séð fyrir, við vitum ekki hverju það breytir að fá þetta flæði af dýrum ferðamönnum á svæðið. Auðvitað hefðum við viljað sjá þetta fylgja betur tímaáætlun en aðalmálið er að húsið er langt komið og verður vonandi opnað á þessu ári.“ Fjallað var um uppbygginguna í kvöldfréttum árið 2023.
Grýtubakkahreppur Ferðaþjónusta Hótel á Íslandi Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fleiri fréttir Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Sjá meira